© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
21.11.2015 | 9:21 | Kristinn | Landslið
Fimmta hundrað stiga ár Helenu með íslenska landsliðinu
Helena Sverrisdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í körfubolta, er þegar búin að komast yfir hundrað stiga múrinn í landsleikjum ársins 2015.

Helena heldur því áfram að bæta við metið sitt en þetta fimmta landsliðsárið þar sem að hún skorað 100 stig eða meira fyrir A-landsliðið.

Helena hefur spilað alla sex landsleiki ársins til þessa og hún hefur skorað í þeim 110 stig eða 18,3 stig að meðaltali í leik.

Helena skoraði líka yfir hundrað stig árin 2004, 2008, 2009 og 2014.

Anna María Sveinsdóttir var bæði fyrst til að skora yfir hundrað stig á einu landsliðsári (1989) sem og ná því í annað sinn (1996).

Helena jafnaði met Önnu Maríu árið 2008 og bætti það síðan árið eftir. Hún hefur síðan skorað yfir hundrað stig undanfarin tvö ár.

Helena vantar talsvert upp á það að jafna stigamet sitt á einu ári en landsliðsárið 2008 skoraði hún 185 stig í 9 landsleikjum eða 20,6 stig að meðaltali í leik.

Það setur samt þetta afrek í visst samhengi að aðeins þrír aðrir leikmenn íslenska landsliðshópsins fyrir Evrópuleikina á móti Ungverjalandi og Slóvakíu hafa náð að skora hundrað stig á öllum landsliðsferli sínum.

Flest ár með 100 stig eða meira fyrir íslenska kvennalandsliðið:
Helena Sverrisdóttir 5
Anna María Sveinsdóttir 2
Birna Valgarðsdóttir 2
Alda Leif Jónsdóttur 1
Björg Hafsteinsdóttir 1
Erla Þorsteinsdóttir 1
Hildur Sigurðardóttir 1
Signý Hermannsdóttir 1
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Kolbrún Jónsdóttir, sjúkraþjálfari KR, hugar að meiðslum Darra Hilmarssonar í leik gegn Haukum í febrúar 2006.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið