© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
     
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
9.6.2007 | 6:38 | SÖA | Landslið
Úrslitaleikur við Kýpur í dag
Sigurður Ingimundarson landsliðsþjálfari er að gera vel með íslenska liðið
Ísland og Kýpur mætast kl. 13:00 í dag á Smáþjóðaleikunum í körfubolta, en þetta er í sextánda sinn sem þjóðirnar mætast. Vinni íslenska liðið tryggir það sér sigur á Smáþjóðaleikunum í fyrsta sinn síðan 1993.

Ísland og Kýpur hafa mæst 15 sinnum og hafa Íslendingar unnið 8 af 15 leikjum. Hins vegar hefur Kýpur unnið fimm síðustu viðureignir liðanna, en Ísland vann Kýpur síðast árið 1999.

Kýpverjar hófu mótið vel og sigruðu örugglega í fyrstu þremur leikjum sínum. Þeir mættu hins vegar ofjörlum sínum í gær og töpuðu með þremur stigum fyrir Lúxemborg. Þau úrslit opna ýmsa möguleika fyrir leik dagsins.

1) Vinni Ísland leikinn er gullið tryggt og Lúxemborg endar í öðru sæti.
2) Vinni Kýpur með 14 stigum eða færri vinnur Ísland leikana og Kýpur endar í öðru sæti.
3) Vinni Kýpur með 15 stigum eða fleiri vinnur Kýpur leikana og Ísland endar í öðru sæti.

Fjórði möguleikinn er að Ísland endi mótið í þriðja sæti, en til að það gerist verður Kýpur að vinna leikinn með 52 stigum eða meira, en þá myndi Lúxemborg hirða annað sætið.

Leikurinn hefst kl.13:00
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
A-landslið karla á afmælismóti Danska körfuknattleikssambandsins í Kaupmannahöfn í desember 1996.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið