© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
20.11.2015 | 12:00 | Kristinn | Landslið
Helena og Gunnhildur hafa spilað alla leikina frá upprisunni
Tvær landsliðskonur hafa spilað alla 19 landsleiki Íslands frá því að íslenska kvennalandsliðið var endurvakið árið 2012.

Eftir Smáþjóðaleikana í júní voru þrír leikmenn ekki búnar að missa úr landsleik frá því að kvennalandsliðið var endurvakið fyrir þremur árum.

Þetta voru þær Helena Sverrisdóttir, Pálína Gunnlaugsdóttir og Gunnhildur Gunnarsdóttir sem höfðu þá spilað alla þrettán leiki liðsins frá 2012 til 2015.

Tvær aðrar voru líka búnar að alla þrettán leiki liðsins frá 2012 til 2014 eða þær Hildur Sigurðardóttir og María Ben Erlingsdóttir sem voru ekki með á Smáþjóðaleikunu.
Hildur Sigurðardóttir hafði lagt körfuboltaskóna á hilluna og María Ben Erlingsdóttir er í barnsburðarleyfi.

Pálína Gunnlaugsdóttir datt úr hópnum þegar hún komst ekki í æfingaferðina til Danmerkur í júlí þar sem liðið spilaði þrjá landsleiki við Danmörku og Finnland.

Eftir standa því Helena Sverrisdóttir og Gunnhildur Gunnarsdóttir sem hafa báðar spilað 19 síðustu leiki liðsins. Gunnhildur var að spila sína fyrstu landleiki sumarið 2012 en Helena hefur ekki misst úr landsleik undanfarin ellefu ár.

Gunnhildur Gunnarsdóttir hefur ekki misst úr landsleik síðan að hún spilaði sinn fyrsta landsleik sem var á móti Noregi á Norðurlandamótinu í Bærum í Noregi 24. maí 2012.

Flestir landsleikir frá 2012 til 2015:
Helena Sverrisdóttir    19
Gunnhildur Gunnarsdóttir    19
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir    16
Pálína Gunnlaugsdóttir    16
Bryndís Guðmundsdóttir    15
Hildur Sigurðardóttir    13
María Ben Erlingsdóttir    13
Ragna Margrét Brynjarsdóttir    12
Hildur Björg Kjartansdóttir    12
Margrét Rósa Hálfdanardóttir    12
Petrúnella Skúladóttir    10
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Kristinn Óskarsson, Sigmundur Már Herbertsson og Rögnvaldur Hreiðarsson taka fund fyrir bikarleik Grindavíkur og Snæfells þann 26. nóvember 2006, leik sem jafnframt var 1000. KKÍ leikur Rögnvaldar á ferlinum.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið