© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
19.11.2015 | 19:00 | Kristinn
Stelpurnar hafa aldrei áður spilað landsleik í nóvember
Íslenska kvennalandsliðið er að mæta Ungverjum í undankeppni EM á mjög óvenjulegum tíma þegar saga kvennalandsliðsins er skoðuð.

Íslensku stelpurnar spila sinn fyrsta leik í E-riðli undakeppni EM 2017 í Miskolc í Ungverjalandi 21. nóvember næstkomandi.

Þetta verður fyrsti leikur íslenska kvennalandsliðsins í nóvembermánuði frá upphafi en eftir þessa leiki liðsins á móti Ungverjalandi og Slóvakíu í nóvember á íslenska kvennalandsliðið aðeins eftir að spila landsleik í þremur af fjórum mánuðum ársins.

Íslenska kvennalandsliðið hefur, auk nóvembermánaðar, aldrei spilað A-landsleik í janúar, febrúar og mars.

Eini leikurinn í október var vináttuleikur við Dani 10. október 1990 og því mun nóvembermánuður strax hoppa upp um eitt sæti á listanum þegar stelpurnar taka á móti Slóvökum í Laugardalshöllinni miðvikudaginn 25. nóvember.

Fyrirkomulagi undankeppni Evrópumótsins hjá konunum hefur verið breytt og hér eftir fara leikirnir fara fram í landsleikjahléum inn á tímabilinu sjálfu en ekki utan keppnistímabilsins eins og áður.

Fram til þessa höfðu allir leikir íslenska kvennalandsliðsins í Evrópukeppni farið fram í ágúst (7) eða september (9).

Flestir leikir kvennalandsliðsins í einum mánuði:
Maí 36
Júní 32
Desember 25
Ágúst 19
Júlí 14
Apríl 12
September 9
Október 1
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Bragi Magnússon leikmaður Skallagríms er hér í sókn gegn Rodney Dobart, leikmanni Grindvíkur. Dobart leysti af Herman Meyers í janúar þetta ár sem varð fyrir meiðslum og lék með Grindavík til sigurs það árið.

Myndin er tekin í 8-liða úrslitunum þann 10. mars 1996 en leikurinn fór 62-76 og þar með vann Grindavík 2-0.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið