© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
18.11.2015 | 11:30 | Kristinn | Landslið
Tvær hafa byrjað alla leiki síðan að Ívar tók aftur við landsliðinu
Ívar Ásgrímsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í körfubolta, hefur sett traust sitt á tvo leikmenn í öllum tólf byrjunarliðunum sínum frá því að hann tók aftur við landsliðinu árið 2014.

Framundan eru tveir leikir hjá kvennalandsliðinu. Íslensku stelpurnar mæta Ungverjalandi á útivelli og Slóvakíu á heimavelli í fyrstu tveimur leikjum liðsins í undankeppni EM 2016.

Helena Sverrisdóttir og Bryndís Guðmundsdóttir hafa byrjað inná í öllum tólf leikjum liðsins árin 2014 og 2015. Hildur Björg Kjartansdóttir var líka í hóp með þeim en komst ekki í æfingaferðina til Danmerkur í júlí eftir að hafa byrjað níu leiki í röð hjá Ívari.

Hildur Sigurðardóttir var í byrjunarliðinu í öllum sex leikjum liðsins árið 2014 en lagði skóna á hilluna síðasta vor. Fyrrum liðsfélagi Hildar hjá Snæfelli, Gunnhildur Gunnarsdóttir, komst fyrst í byrjunarliðið í ár og hefur byrjað alla leiki ársins.

Ívar var með sama byrjunarlið í öllum sex leikjum ársins 2014 en það hafa níu leikmenn skipt með sér byrjunarliðssætunum á árinu 2015.

Helena hefur nú verið í byrjunarliðinu í öllum landsleikjum frá því maí 2005 eða í 46 landsleikjum í röð.

Bryndís var aftur á móti aðeins búin að vera í byrjunarliðinu í 5 af 23 fyrstu landsleikjum sínum þegar Ívar gerði hana að fastakonu í byrjunarliðinu sínu frá fyrsta landsleik liðsins árið 2014.

Íslenska kvennalandsliðið mætir Ungverjum í Miskolc laugardaginn 21. nóvember og fjórum dögum síðar er síðan leikur á móti Slóvakíu í Laugardalshöllinni.

Flestir leikir í byrjunarliði síðan að Ívar Ásgrímssonar tók aftur við 2014:
Helena Sverrisdóttir · 12
Bryndís Guðmundsdóttir · 12
Hildur Björg Kjartansdóttir · 9
Pálína Gunnlaugsdóttir · 7
Hildur Sigurðardóttir · 6
Gunnhildur Gunnarsdóttir · 6
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir · 3
Sara Rún Hinriksdóttir · 2
Margrét Rósa Hálfdanardóttir · 2
Ragna Margrét Brynjarsdóttir · 1
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Jón Arnór Stefánsson sneri sig illa á ökkla í landsleik gegn Luxembourg haustið 2006.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið