© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
17.11.2015 | 6:00 | Kristinn
Bara helmingurinn af EM-hópi Ungverja verður með á móti Íslandi
Tijana og Helena samherjar í Good Angels
Ísland mætir Ungverjalandi í fyrsta leik sínum í undankeppni EM 2017 á laugardaginn kemur en leikurinn fer fram í borginni Miskolc í norð-austurhluta landsins.

Ungverska liðið var með í síðustu úrslitakeppni sem fór fram síðasta sumar og voru Ungverjar þá á heimavelli. Keppnin fór fram bæði í Ungverjalandi og Rúmeníu.

Ungversku stelpurnar unnu aðeins 1 af 4 leikjum sínum í keppninni, komust ekki upp úr sínum riðli og enduðu í 17. sæti af 20 þjóðum.

Eini sigurleikur Ungverja kom í lokaleik riðilsins á móti Slóvakíu en liðið tapaði meðal annars 72:63 á móti Svíum.

Ungverjar hafa nú gefið út hvaða fjórtán leikmenn munu taka þátt í leikjum tveimur í nóvember en Ungverjar spila við Portúgal fjórum dögum eftir Íslandsleikinn eða á sama tíma og íslensku stelpurnar taka á móti Slóvakíu í Laugardalshöllinni.

Það eru bara 6 af þessum 14 leikmönnum sem voru með á EM í sumar og það vantar meðal annars 3 af 5 byrjunarliðsleikmönnum liðsins. Enginn af þeim sem byrjuðu leikinn á undan, tapleik á móti Spáni, eru með.

Leikmennirnir sem byrjuðu sigurleikinn á móti Slóvökum og taka þátt í þessu verkefni eru bakvörðurinn Timea Czank og miðherjinn Tijana Krivacevic sem voru báðar liðsfélagar Helenu í atvinnumennskunni.

Alls vantar fjórar af fimm stigahæstu leikmönnum Ungverja á Evrópumótinu en það eru bakvörðurinn Allie Quigley (17,0 stig í leik), kraftframherjinn Anna Vajda (9,8 stig og 6,5 fráköst í leik), leikstjórnandinn Katalin Honti (9,5 stig og 6,3 stoðsendingar í leik) og miðherjinn Dóra Horti (8,0 stig í leik).

Tijana Krivacevic (9,5 stig og 4,8 fráköst í leik) er sú af þessum fimm stigahæstu sem íslensku stelpurnar fá að reyna sig á móti í leiknum á laugardaginn.

Það mætti halda að ungverska liðið sé að ganga í gegnum kynslóðarskipti eftir vonbrigðin að sitja eftir í riðlinum sem gestgjafar Evrópumótsins síðasta sumar.

Fjórtán manna hópur Ungverja:
Tímea Czank (Með á EM 2015)
Zsófia Fegyverneky  (Með á EM 2015)
Dubei Debóra
Diána Furész
Bernadett Határ  (Með á EM 2015)
Bernadett Horváth
Pálma Kaposi
Tijana Krivacevic  (Með á EM 2015)
Anna Laklóth
Nóra Nagy-Bujdosó
Dorottya Nagy
Zsófia Simon  (Með á EM 2015)
Fanni Andrea Szabó
Dorina Zele (Með á EM 2015)
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Úr viðureign Skallagríms og Breiðabliks í 2. deild kvenna tímabilið 2007-08. Rósa Indriðadóttir, leikmaður Skallagríms, keyrir upp völlinn á meðan Ragnhildur Theodórsdóttir, leikmaður Breiðabliks eltir hana uppi.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið