© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
12.11.2015 | 15:19 | Kristinn | Landslið
Æfingahópur íslenska landsliðsins · Undankeppni EM
Íslenska kvennalandsliðið í körfuknattleik mun hefja keppni laugardaginn 21. nóvember í undankeppni EuroBasket 2017. Fyrsti leikur liðsins verður í Ungverjalandi í borginni Miskolc, sem er Helenu Sverrisdóttur góðu kunn þar sem hún lék með liðinu sem atvinnumaður fyrir 2 árum, og svo tekur við heimaleikur í Laugardalshöllinni miðvikudaginn 25. nóvember gegn Slóvakíu.

Ungverjar og Slóvakía voru bæði á EuroBasket kvenna síðastliðið sumar og því verðugir andstæðingar fyrir stelpurnar okkar en einnig leikur Portúgal í riðli með þessum þjóðum. Keppt verður í fyrsta sinn í nýju keppnisfyrirkomulagi FIBA í undankeppninni og verður leikið í tveimur „gluggum“ og verður seinni umferðin á þessu keppnistímabili leikinn í lok febrúar, en þá verða einnig tveir leikir, annar á útivelli og hinn hér heima. Á meðan lansleikjatörnin stendur yfir verður gert hlé í Domino's deild kvenna skv. reglum frá FIBA. Seinni hlutinn í undankeppni EM verður svo með sama sniði á næsta tímabili. (haust 2016 og febrúar 2017).

Leikurinn hér heima gegn Slóvakíu verður sýndur í beinni útsendingu á RÚV2 og hefst hann kl. 19:30.

Æfingahópur Landsliðs kvenna fyrir undankeppni haust 2015 er skipaður eftirtöldum 15 leikmönnum:
Auður Íris Ólafsdóttir – Haukar · Bakvörður f. 1992 · 174 cm · 6 landsleikir
Berglind Gunnarsdóttir - Snæfell · Bakvörður f. 1992 · 177 cm · Nýliði
Bergþóra Holton Tómasdóttir – Valur · Bakvörður · f. 1994 · 180 cm · Nýliði
Björg Einarsdóttir – Grindavík · Bakvörður · f. 1992 · 165 cm · 3 landsleikir
Bryndís Guðmundsdóttir – Snæfell · Framherji · f. 1988 · 178 cm · 35 landsleikir
Guðbjörg Sverrisdóttir – Valur · Bakvörður · f. 1992 · 180 cm · 7 landsleikir
Gunnhildur Gunnarsdóttir – Snæfell · Bakvörður · f. 1990 · 176 cm · 19 landsleikir
Helena Sverrisdóttir – Haukar · Bakvörður · f. 1988 · 184 cm · 57 landsleikir
Jóhanna Björk Sveinsdóttir – Haukar · Framherji · f. 1989 · 178 cm · 5 landsleikir
Marín Laufey Davíðsdóttir – Keflavík · Miðherji · f. 1995 · 180 cm · 5 landsleikir
Pálína Gunnlaugsdóttir – Haukar · Bakvörður · f. 1987 · 167 cm · 31 landsleikir
Petrúnella Skúladóttir – Grindavík · Bakvörður · f. 1985 · 177 cm · 28 landsleikir
Ragna Margrét Brynjarsdóttir – Stjarnan · Miðherji · f. 1990 · 188 cm · 29 landsleikir
Sandra Lind Þrastardóttir – Keflavík · Miðherji · f. 1996 · 182 cm · 3 landsleikir
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir – Grindavík · Framherji f. 1988 · 181 cm · 36 landsleikir
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Stjórn og starfsmenn KKÍ veturinn 2000-01. Fremri röð frá vinstri: Erla Sveinsdóttir, ritari, Ólafur Rafnsson, formaður, Ólafur Þór Jóhannsson, varaformaður og Magnús Svavarsson, gjaldkeri. Aftari röð frá vinstri: Björn Leósson, starfsmaður, Sturla Jónsson, varamaður, Jóhannes Karl Sveinsson, meðstjórnandi, Hannes S. Jónsson, meðstjórnandi og Pétur Hrafn Sigurðsson, framkvæmdastjóri.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið