© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
7.6.2007 | 15:30 | oddur
NBA úrslitin hefjast í nótt
LeBron James á það til að troða yfir andstæðingana.
Úrslitaeinvígi NBA deildarinnar hefst í nótt klukkan 1:00 í San Antonio. Þar mætast San Antonio Spurs og Cleveland Cavaliers. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Sýn.

San Antonio Spurs þykja sigurstranglegri í þessu einvígi en þeir unnu 58 af 82 leikjum sínum á leiktímabilinu. Síðan lögðu þeir Denver Nuggets, Phoenix Suns og Utah Jazz á leið sinni í úrslitin. San Antonio hefur unnið þrjá titla síðan 1999 og hefur stjörnur eins og Tim Duncan, Tony Parker og Manu Ginobili í leikmannahópi sínum.

Cleveland Cavaliers komu mörgum á óvart með því að komast alla leið í úrslit deildarinnar. Þeir unnu 50 leiki á tímabilinu en töpuðu 32. Í úrslitakeppninni lögðu þeir Washington Wizards, New Jersey Nets og Detroit Pistons að velli og komust þar með í úrslit NBA í fyrsta sinn í sögu félagsins. Með Cleveland Cavaliers leikur LeBron James, sem að er orðinn einn þekktasti leikmaður heims í dag. Hann hefur leikið frábærlega í úrslitakeppninni og vakti mikla athygli þegar hann skoraði 48 stig í 5 leik einvígisins gegn Detroit.

Það er ljóst að San Antonio mun leggja mikla áherslu á að stoppa LeBron James í þessu einvígi. Það mun því mikið mæða á meðspilurum James í Cleveland liðinu. Flestir körfuboltasérfræðingar telja að þeir verði að leika vel til þess að Cleveland eigi möguleika á að vinna NBA titilinn.

Það er á hreinu að körfuboltaáhugamenn eiga í vændum frábæra skemmtun enda tvö af sterkustu liðum deildarinnar að mætast þarna.

Scottie Pippen spáir í spilin

Bill Russell ræðir um úrslitaeinvígið

Myndbrot úr úrslitum NBA deildarinnar.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Liðsmenn KFÍ í 7. flokki karla veturinn 2004-05. Hér er liðið á fjölliðamóti á Ásvöllum haustið 2004.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið