© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
11.4.2001 | 13:52 | BL
Lokahóf og rokksýning 20. apríl
Lokahóf KKÍ verður með örlítið breyttu sniði að þessu sinni, en auk hinna hefðbundnu atriða á hófinu verður glæsileg rokksýning þar sem lög bresku hljómsveitarinnar Queen verða í öndvegi. Þar er það rauðhærði rokkarinn og Þróttarinn Eiríkur Hauksson sem bregður sér í hlutverk Freddie Mercury.

Dagskrá kvöldsins verður í helstu atriðum þessi:
Húsið opnar kl. 19:00
Borðhald hefst kl. 20:00

Matseðill
Rjómabætt skelfisksúpa að hætti hússins.
Gljáðar kalkúnabringur með perusósu.
Heimalagaður ís að hætti hússins með kahluasósu

Skemmtiatriði:
Yfir borðhaldi verður leikið á flygil (Haukur Heiðar Ingólfsson )
Verðlaunaafhendingar fara fram á milli kl: 21:30 -22:30. Þar fá þeir einstaklingar sem skarað hafa fram úr í einstökum þáttum tölfræði körfuboltans sem og bestu leikmenn, þjálfarar og dómarar afhent verðlaun sín.

Að því loknu verður Queen sýning og dansleikur að því loknu.

Queen:
Rokksýning allra tíma á Íslandi. Einhver magnaðasta sýning sem sett hefur verið á svið á Broadway. Eiríkur Hauksson í hlutverki Freddie Mercury, syngur öll vinsælustu lög hljómsveitarinnar frá upphafi við undirleik landsliðs íslenskra hljóðfæraleikara.
Hljómsveitarstjóri er Gunnar Þórðarson.
Dansstjórn: Jóhann Örn
Leikstjórn: Egill Eðvarðsson.

Miðasala er á Hótel Íslandi og þangað þurfa félög og einstaklingar sem ætla á hófið að snúa sér til að panta miða. Miðaverð er kr. 4.900 á mann.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Leikmenn U16 liðs karla liggja eins og hráviði út um allt gólf fyrir æfingaleik gegn U18 liði karla vorið 2006.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið