© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
22.5.2007 | 11:46 | oddur
Nýliðalottó NBA verður í kvöld
Flestir telja að Greg Oden verði valinn fyrstur í nýliðavalinu í júní
Í kvöld verður dregið um hvaða lið fær fyrsta valréttinn í nýliðavali NBA sem verður haldið 28. júní í Madison Square Garden í New York.

Memphis Grizzlies eiga mesta möguleika á því að fá fyrsta valréttinn en þeir voru með versta vinningshlutfallið í NBA deildinni í vetur. Grizzlies eiga 25% möguleika á því að fá fyrsta valréttinn en Boston Celtics koma næstir með 19,9% líkur.

Nýliðaúrvalið í ár er með þeim sterkustu í langan tíma að mati margra sérfræðinga. Það eru því mörg lið sem að hugsa sér gott til glóðarinnar þegar kemur að því að velja leikmennina. Greg Oden og Kevin Durant eru þeir leikmenn sem að flestir telja að verði valdir númer eitt og tvö í valinu í júní en leikmenn eins og Yi Jianlian og Al Horford eru taldir eiga bjarta framtíð í deildinni líka.

Það er jafnan mikið um leikmannaskipti í tengslum við nýliðavalið. Framkvæmdastjórar liðanna bíða því spenntir eftir að sjá hvernig kúlurnar skoppa í kvöld.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá ferð A-landsliðs karla til Osló í Noregi í janúar 1986. Valur Ingimundarson og Guðni Guðnason.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið