S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
||
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
20.5.2007 | 0:55 | SÖA
Íslensku dómararnir góðir á NM
Kristinn Óskarsson FIBA-dómari dæmir úrslitaleik U18 karla
Björgvin Rúnarsson ríður á vaðið þegar hann dæmir úrslitaleik 18 ára kvenna milli Svíþjóðar og Finnlands. Meðdómarar hans í leiknum eru Andreas Lind frá Noregi og Rune Larsen frá Danmörku. Seinni úrslitaleiki dagsins dæma hinir þrír íslensku dómararnir. Guðni E. Guðmundsson og Davíð K. Hreiðarsson dæma ásamt Lindu Evensen frá Noregi úrslitaleik 16 ára kvenna. Á sama tíma dæmir Kristinn Óskarsson úrslitaleik 18 ára drengja ásamt Marku Karpinen frá Finnlandi og Jan Hendrik Lunde frá Noregi. Eins og áður á NM er það mál manna að íslensku dómararnir hafa skarað fram úr á mótinu og er þessi niðurröðun vitnisburður um að svo sé. |