© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
         
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
19.5.2007 | 21:27 | OOJ
Strákarnir áttu lokamínúturnar og eru komnir í úrslitaleikinn
Arnþór Guðmundsson skoraði 22 stig gegn Finnum. Mynd: Snorri Örn
Sextán ára lið karla komst í dag í úrslitaleikinn á Norðurlandamótinu í Solna í Svíþjóð með því að vinna flottan ellefu stiga sigur á Finnum, 76-65. Þetta var þriðji sigur íslenska liðsins á mótinu og strákarnir komu sterkir til baka eftir tapið gegn Dönum í gær. Íslensku strákarnir mæta Svíum í úrslitaleiknum en þeir unnu leikinn við heimamenn Svía með 13 stigum í riðlakeppninni og eiga því góða möguleika á að verða Norðurlandameistarar á morgun.

Finnar byrjuðu leikinn betur og íslensku strákarnir voru að elta þá fram eftir leik. Finnar komust í 8-13 og 12-16 og voru fimm stigum yfir, 14-19, eftir fyrsta leikhlutann. Finnar skoruðu síðan sex fyrstu stigin í öðrum leikhluta og voru þá komnir 11 stigum yfir, 14-25, og útlitið var ekki alltof bjart. Benedikt Guðmundsson tók þá leikhlé og í framhaldinu komu 12 íslensk stig í röð þar af skoraði fyrirliðinn Ægir Þór Steinarsson 7 þeirra. Ægir Þór, sem hefur verið frábær á mótinu, skoraði alls 14 stig í leiknum.

Leikurinn hélst síðan jafn, staðan var 35-35 í hálfleik og finnska liðið var einu stigi yfir, 53-52, þegar lokaleikhlutinn hófst. Íslensku strákarnir áttu hinsvegar mun meira inni á lokasprettinum, skoruðu fyrst fimm stig í röð í upphafi fjórða leikhluta og gerðu síðan út um leikinn með því að skora sjö stig í röð og koma muninum upp í 10 stig, 62-72. Að lokum skildu 11 stig liðin af.

Arnþór Guðmundsson og Haukur Óskarsson fóru fyrir íslenska liðinu í stigaskoruninni og skoruðu saman 41 stig en annars er sama hvar komið er niður í liðinu, hver einasti leikmaður liðsins hefur mikilvægt hlutverk og sinnir því vel. Þorgrímur Björnsson og Trausti Eiríksson voru gríðarlega öflugir í fráköstunum, Ægir Þór Steinarsson er spila geysivel fyrir liðið og menn eins og Haukur Helgi Pálsson og Tómas Tómasson koma ávallt með sterka innkomu af bekknum.

16 ára strákar: Ísland-Finnland 76-65
Stigaskorið:
Arnþór Guðmundsson 22 (8 fráköst, 3 stoðsendingar)
Haukur Óskarsson 19 (5 fráköst)
Ægir Þór Steinarsson 14
Þorgrímur Björnsson 8 (10 fráköst)
Haukur Helgi Pálsson 6 (4 fráköst)
Tómas Tómasson 3
Trausti Eiríksson 2 (10 fráköst)
Daði Berg Grétarsson 2
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Þátttakendur í kynningarleik á hjólastólakörfubolta. Sitjandi frá vinstri: Reynir Kristófersson, Viðar Árnason, Svanur Ingvarsson, Jóhann Kristjánsson, Sigurður Sigurðsson, Þorkell Sigurlaugsson og Geir Magnússon frá Stöð 2. Standandi frá vinstri: Skapti Hallgrímsson Morgunblaðinu, Adolf Ingi Erlingsson RÚV, Valur Jónatansson Morgunblaðinu, John Rhodes, Ólafur Rafnsson formaður KKÍ, Samúel Örn Erlingsson RÚV, Valtýr Björn Valtýsson Stöð 2, Ólafur Eiríksson og Valur Hlíðberg.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið