© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
19.5.2007 | 21:01 | OOJ
Stelpurnar skelltu Norðmönnum og spila um bronsið
Guðbjörg Sverrisdóttir var frábær gegn Noregi í dag. Mynd: Snorri Örn
Sextán ára lið kvenna vann sinn fyrsta sigur á Norðurlandamótinu í Solna í Svíþjóð þegar liðið skellti Norðmönnum með 18 stigum, 59-41. Íslensku stelpurnar fögnuðu sigrum vel enda allar að vinna sinn fyrsta landsleik. Íslenska liðið spilar því um bronsið við Dani á morgun.

Íslenska liðið byrjaði af miklu krafti, komst í 9-0, 15-9 og var 19-13 yfir eftir fyrsta leikhlutann. Guðbjörg Sverrisdóttir byrjaði leikinn frábærlega og var með 10 stig í þessum fyrsta leikhluta. Baráttan og leikgleðin var í fyrirrúmi og íslensku stelpurnar tóku meðal annars 18 fráköst fyrstu tíu mínútur leiksins.

Íslensku stelpurnar héldu frumkvæðinu út hálfleikinn og voru 31-23 yfir í hálfleik. Norðmenn bitu aðeins frá sér í þriðja leikhluta og náðu að koma muninum niður í tvö stig, 35-33, þegar tæpar 5 mínútur voru eftir. Tvær körfur frá Þorbjörgu Friðriksdóttur og ein frá Lóu Dís Másdóttur og allar eftir glæsilegar stoðsendingar frá Heiðrúnu Kristmundsdóttur, komu muninum aftur upp í átta stig, 41-33, fyrir lok þriðja leikhluta.

Salbjörg Sævarsdóttir gerði síðan út um leikinn í fjórða leikhlutanum með því að skora sjö stig í röð í upphafi fjórða leikhlutans og koma íslenska liðinu 13 stigum yfir, 48-35. Þrátt fyrir smá svar frá Norðmönnum var sigur íslensku stelpnanna aldrei í hættu eftir það en glæsileg þriggja stiga karfa frá Elmu Jóhannsdóttur gulltryggði á endanum sannfærandi sigur.

Það eiga margar í íslenska liðinu hrós skilið fyrir góðan leik, Guðbjörg Sverrisdóttir var mjög góð með 22 stig, 10 fráköst og 6 stolna bolta og fyrirliðinn Lóa Dís Másdóttir fór fyrir sínu liði í fórnfýsi og baráttu og endaði með 12 stig og 16 fráköst. Salbjörg Sævarsdóttir átti frábæran endasprett, Þorbjörg Friðriksdóttir og Elma Jóhannsdóttir skoruðu mikilvægar körfur og þá var Heiðrún Krismundsdóttir með 9 fráköst og 8 stoðsendingar.

16 ára stelpur: Ísland-Noregur 59-41
Stigaskorið:
Guðbjörg Sverrisdóttir 22 stig (10 fráköst, 6 stolnir)
Lóa Dís Másdóttir 12 (16 fráköst, 4 stolnir, 3 varin)
Salbjörg Sævarsdóttir 8 (10 fráköst)
Þorbjörg Friðriksdóttir 6
Elma Jóhannsdóttir 5 (7 fráköst, 2 varin)
Heiðrún Kristmundsdóttir 3 (9 fráköst, 8 stoðsendingar, 2 varin)
Heiðrún Hödd Jónsdóttir 3
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Sigurlið ÍBH á Landsmóti U.M.F.Í. sumarið 2007 sem fór fram í Kópavogi. ÍBH lagði Keflavík í úrslitaleiknum.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið