© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
19.5.2007 | 12:48 | SÖA
Tveir sigrar og eitt tap
Trausti Eiríksson lék vel í dag og hirti meðal annars 10 fráköst. Mynd: SÖA
Íslensku liðin hafa unnið tvo leiki og tapað einum í dag. 16 ára lið kvenna keppir núna kl. 13 við Norðmenn.

16 ára lið karla unnu góðan baráttusigur á Finnum í hörkuleik, 76-65. Finnar leiddu stóran hluta leiksins en íslensku strákarnir náðu sigri af miklu harðfylgi. Með sigrinum tryggðu þeir sér sæti í úrslitaleik mótsins.

18 ára lið kvenna unnu stóran sigur á Noregi, 82-51. Stelpurnar höfðu leikið ágætlega á mótinu fram til þessa, en náðu loksins virkilega góðum leik og höfðu því auðveldan sigur á norsku stúlkunum. Stúlkurnar leika því um bronsið á morgun.

18 ára lið karla tapaði gegn Svíum 59-69. Leikurinn var nokkuð jafn, en Íslendingar höfðu þó frumkvæðið lengst af. Svíarnir náðu svo að sigla fram úr í lokin og hafa sigur. Tapið þýðir að íslensku strákarnir enda í fimmta og síðasta sæti.

16 ára lið kvenna leikur núna kl. 13 við Norðmenn, en vinni þær þann leik komast þær í leikinn um þriðja sætið.

Nánar verður fjallað um leikina síðar í dag.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Leikmenn, þjálfarar, fararstjórar og dómarar sem fóru fyrir Íslands hönd á Norðurlandamótið árið 2004 í Solna í Svíþjóð.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið