© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
19.5.2007 | 6:14 | OOJ
Öll landsliðin eiga möguleika á verðlaunasæti
Haukur Óskarsson og félagar í 16 ára liðinu þurfa að vinna Finna í dag.
Öll fjögur landsliðið keppast um það í dag að því að fá að spila um verðlaun á Norðurlandamótinu í Solna í Stokkhólmi. Leikirnir um sæti fara fram á morgun, sunnudag. Strákaliðin eiga bæði möguleika á að komast í úrslitaleikinn en stelpuliðin þurfa bæði að vinna Noreg í dag til þess að komast í leikinn um 3. sætið.

18 ára strákarnir eru í sérstakri stöðu því þeir spila til úrslita vinni þeir Svía í dag en tapist leikurinn enda þeir í 5. og neðsta sæti og hafa um leið lokið leikjum sinum á Norðurlandamótinu.

16 ára strákarnir mæta Finnum og með sigri eru þeir komnir í úrslitaleikinn þar sem að þeir eru með bestu innbyrðisstöðuna verði Ísland, Svíþjóð og Danmörk jöfn. Tapist leikurinn spila strákarnir um 3. sætið á mótinu. Danir sem unnu Íslendinga í gær verða að vinna Noreg og treysta á að Finnar vinni Ísland svo að þeir komist í úrslitaleikinn. Danir eru nefnilega með lökustu stöðuna innbyrðis verði Ísland, Svíþjóð og Danmörk jöfn.

18 ára stelpurnar mæta Noregi í heinum úrslitaleik um hvort liðið spilar um bronsið. Norðmenn unnu Finna í gær og eru til alls líklegar. 16 ára stelpurnar eru í svipaðri stöðu en þær spila við Norðmenn og komast í leikinn um bronsið með sigri.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
8. flokkur karla sem var afar sigursæll veturinn 1992-93. Þjálfari þeirra var Hörður Gauti Gunnarsson sem var aðstoðarþjálfari mfl. kvenna hjá KR veturinn 2008-2009.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið