© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
18.5.2007 | 21:26 | OOJ
Sigur og tap í miklum spennuleikjum hjá strákunum
Þröstur Leó Jóhannsson átti hetjulega innkomu í lokin. Mynd: Snorri Örn
Íslensku strákaliðin lentu bæði í miklum spennuleikjum á Norðurlandamótinu í Solna í kvöld, 18 ára strákarnir unnu þá sinn fyrsta sigur, 79-76, á móti Finnum en 16 ára strákarnir máttu hinsvegar sætta sig við sitt fyrsta tap, 58-63, á móti Dönum. Sextán ára stelpurnar töpuðu síðan með 41 stigs mun, 29-70, á móti geysisterku sænsku liði.

18 ára strákarnir eiga enn möguleika á að komast í úrslitaleikinn en þeir eru í þeirri stöðu á morgun að sigur gæti komið þeim í úrslitaleikinn en tap þýðir að liðið endar í neðsta sæti. 16 ára strákarnir þurfa að vinna Finna til þess að komast í úrslitaleikinn en annars spila þeir um 3. sætið. Stelpurnar í 16 ára liðinu spila gegn Noregi á morgun og komast með sigri í leikinn um þriðja sætið.

Átján ára strákarnir unnu mikinn karaktersigur á Finnum í æsispennandi leik, 79-76, eftir að hafa lent mest tólf stigum undir bæði í fyrsta og öðrum leikhluta. Rúnar Ingi Erlingsson og Þröstur Leó Jóhannsdóttir misstigu sig báðir illa á ökkla í leiknum en komu aftur inn á og sá um að landa sigrinum á hetjulegan hátt. Þröstur skoraði meðal anars sex stig á síðustu fjórum mínútunum og Rúnar Ingi stjórnaði leik íslenska liðsins af mikilli röggsemi og gaf 8 af 10 stoðsendingum sínum í seinni hálfleik.

Íslenska liðið lenti 10-22 og 26-38 undir í fyrri hálfleik en frábær þriðji leikhluti kom þeim aftur inn í lokin. Útlitið var ekki alltof bjart þegar Hjörtur Hrafn Einarsson fékk sína fimmtu villu þegar Ísland var 63-71 undir og aðeins 4:41 mínútur voru eftir. Í stað þess að gefast upp sýndu strákarnir einstakan sigurvilja og mikla liðsheild og unnu glæsilegan sigur eftir að hafa unnið lokakafla leiksins 16-5. Það var gaman að sjá til liðsins í dag og nú þekkti maður þessa góðu körfuboltamenn sem fundu sig engan veginn í tveimur fyrstu leikjunum.

18 ára strákar: Ísland-Finnland 79-76
Stigaskorið:
Þröstur Leó Jóhannsson 23 stig (8 fráköst)
Rúnar Ingi Erlingsson 15 (10 stoðsendingar, 5 fráköst)
Örn Sigurðarson 14 (6 fráköst, 4 varin)
Hjörtur Hrafn Einarsson 13 (4 fráköst, 3 stoðsendingar)
Atli Rafn Hreinsson 8 (3 stoðsendingar)
Elías Kristjánsson 5
Baldur Ragnarsson 1

Sextán ára strákarnir þurftu að sætta sig við sitt fyrsta tap á Norðurlandamótinu eftir mikinn spennuleik á móti Dönum. Danska liðið var með frumkvæðið mest allan tímann og vann að lokum fimm stiga sigur, 58-63, en íslenska liðið var allan tímann inn í leiknum og komst meðal annars yfir í lokin.

Danir þurftu að vinna til þess að eiga möguleika á því að komast í úrslitaleikinn og nú ræður leikur Íslands og Svíþjóðar á morgun hvor þjóðin spilar um gullið við Dani. Íslensku strákarnir voru komnir fimm stigum yfir, 55-50, þegar tvær mínútur voru eftir en gáfu þá eftir og Danir unnu lokamínúturnar tvær 13-3. Danir voru sjö stigum yfir eftir fyrsta leikhluta, 10-17, sex stigum yfir í hálfleik, 23-29 og með þriggja stiga forskot, 39-42, fyrir fjórða leikhlutann.

16 ára strákar: Ísland-Danmörk 58-63
Stigaskorið:
Ægir Þór Steinarsson 15 stig (4 stoðsendingar, 4 stolnir)
Trausti Eiríksson 12 (12 fráköst, 7 stolnir)
Haukur Óskarsson 12 (8 fráköst, 5 stolnir)
Haukur Helgi Pálsson 6 (6 fráköst, 3 stolnir)
Arnþór Guðmundsson 5 (4 stoðsendingar)
Tómas Tómasson 5 (2 stolnir, 7 mínútur)
Daði Berg Grétarsson 3

Sextán ára stelpurnar áttu aldrei möguleika gegn geysisterku sænsku liði og töpuðu leiknum með 41 stigi, 29-70. Íslenska liðið hélt í við það sænska í fyrsta leikhluta en í hálfleik var munurinn kominn upp í 19 stig, 32-13. Eftir agalegan þriðja leikhluta sem Svíar unnu 25-3 náðu íslensku stelpurnar að bíta aðeins frá sér í lokin og fjórði leikhlutinn endaði 13-13. Íslenska liðið á enn möguleika á verðlaunasæti en til þess að komast í leikinn um bronsið þurfa stelpurnar að vinna Norðmenn á morgun.

16 ára stelpur: Ísland-Svíþjóð 29-70
Stigaskorið:
Guðbjörg Sverrisdóttir 7 (4 fráköst, 3 stolnir)
Salbjörg Sævarsdóttir 5 (4 fráköst)
María Ben Jónsdóttir 3
Helga Hjördís Björgvinsdóttir 3
Þorbjörg Friðriksdóttir 3 (3 fráköst)
Heiðrún Kristmundsdóttir 2 (4 fráköst)
Heiðrún Hödd Jónsdóttir 2
Sara Mjöll Magnúsdóttir 2
Lóa Dís Másdóttir 1 (4 fráköst)
Rannveig Ólafsdóttir 1
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá Smáþjóðaleikunum á Möltu 1993.  Kolbeinn Pálsson formaður KKÍ, og Torfi Magnússon landsliðsþjálfari A-landsliða karla og kvenna.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið