© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
16.5.2007 | 14:22 | OOJ
Strákarnir hvíla í kvöld en spila í staðinn tvo leiki á morgun
Ægir Þór Steinarsson er fyrirliði 16 ára liðsins. Myndir: Snorri Ör
Norðurlandamót unglinga hefst í Svíþjóð í dag. Sextán ára landsliðið stráka hefur ekki leik fyrr en á morgun en spilar þess í stað tvo leiki á fyrsta degi. Mótherjar íslenska liðsins á fyrsta degi eru Norðmenn og Svíar en strákarnir mæta Norðmönnum klukkan 10.30 og svo Svíum klukkan 18.30. Heimasíðan kynnir þá tólf leikmenn sem skipa liðið á mótinu í ár.

Sextán ára landslið Íslands í karlaflokki hefur náð verðlaunum á síðustu þremur Norðurlandamótum, vann gull 2004, silfur fyrir tveimur árum og loks brons í fyrra. Benedikt Guðmundsson þjálfaði einnig liðið fyrir þremur árum þegar 1988-strákarnir urðu Norðurlandameistarar.

Leikmenn liðsins koma frá sex félögum. Fjölnir á alls fimm leikmenn í hópnum en tveir leikmenn koma frá bæði Breiðabliki og Skallagrími. Haukar, Valur og Snæfell eiga síðan öll einn leikmann í tólf manna hópnum.

Arnþór Guðmundsson úr Fjölni og Þorgrímur Björnsson úr Val eru reyndustu leikmenn liðsins og þeir einu sem hafa spilað landsleiki áður. Báðir léku þeir með 16 ára liðinu í fyrra, Þorgrímur skoraði 35 stig í 13 leikjum en Arnþór var með 29 stig í 13 leikjum.

Fjölnismenn eiga flesta leikmenn í hópnum en 1991-áragngurinn hjá félaginu hefur verið ósigrandi síðustu ár og hefur orðið Íslands- og bikarmeistari tvö ár í röð. Þótt að tíu leikmenn í liðinu séu nýliðar hafa þeir kynnst norrænum körfubolta því allir hafa þeir tekið þátt í Scania Cup sem er óopinbert Norðurlandamót félagsliða sem fer fram um páska ár hvert.

16 ára liða karla

Leikir liðsins: (Íslenskur tími)
Fimmtudagur 17. maí 10:30 Ísland-Noregur
Fimmtudagur 17. maí 18:30 Ísland-Svíþjóð
Föstudagur 18. maí 17:00 Ísland-Danmörk
Laugardagur 19. maí 7:00 Ísland-Finnland
Á sunnudeginum, 20. maí, er síðan leikið um sæti


Bakverðir:


Tómas Heiðar Tómasson
Númer á treyju: 4
Félag: Fjölnir
Fæðingarár: 1991
Hæð: 184 sm
Landsleikir/stig: Nýliði
Reynsla af NM: Fyrsta skipti


Arnar Pétursson
Númer á treyju: 5
Félag: Breiðablik
Fæðingarár: 1991
Hæð: 172 sm
Landsleikir/stig: Nýliði
Reynsla af NM: Fyrsta skipti


Ívar Örn Hákonarson
Númer á treyju: 6
Félag: Breiðablik
Fæðingarár: 1991
Hæð: 182 sm
Landsleikir/stig: Nýliði
Reynsla af NM: Fyrsta skipti


Ægir Þór Steinarsson Fyrirliði
Númer á treyju: 8
Félag: Fjölnir
Fæðingarár: 1991
Hæð: 178 sm
Landsleikir/stig: Nýliði
Reynsla af NM: Fyrsta skipti


Daði Berg Grétarsson
Númer á treyju: 11
Félag: Fjölnir
Fæðingarár: 1991
Hæð: 179 sm
Landsleikir/stig: Nýliði
Reynsla af NM: Fyrsta skipti


Arnþór Guðmundsson
Númer á treyju: 14
Félag: Fjölnir
Fæðingarár: 1991
Hæð: 184 sm
Landsleikir/stig: 13 leikir, 29 stig
Reynsla af NM: Annað skipti (5 leikir, 8 stig)


Framherjar:


Trausti Eiríksson
Númer á treyju: 7
Félag: Skallagrímur
Fæðingarár: 1991
Hæð: 197 sm
Landsleikir/stig: Nýliði
Reynsla af NM: Fyrsta skipti


Haukur Óskarsson
Númer á treyju: 9
Félag: Haukar
Fæðingarár: 1991
Hæð: 191 sm
Landsleikir/stig: Nýliði
Reynsla af NM: Fyrsta skipti


Egill Egilsson
Númer á treyju: 10
Félag: Snæfell
Fæðingarár: 1991
Hæð: 184 sm
Landsleikir/stig: Nýliði
Reynsla af NM: Fyrsta skipti


Haukur Helgi Pálsson
Númer á treyju: 13
Félag: Fjölnir
Fæðingarár: 1992
Hæð: 193 sm
Landsleikir/stig: Nýliði
Reynsla af NM: Fyrsta skipti


Miðherjar:


Sigurður Þórarinsson
Númer á treyju: 12
Félag: Skallagrímur
Fæðingarár: 1992
Hæð: 200 sm
Landsleikir/stig: Nýliði
Reynsla af NM: Fyrsta skipti


Þorgrímur Björnsson
Númer á treyju: 15
Félag: Valur
Fæðingarár: 1991
Hæð: 198 sm
Landsleikir/stig: 13 leikir, 35 stig
Reynsla af NM: Annað skipti (5 leikir, 24 stig)


Þjálfari:


Þjálfari liðsins er Benedikt Guðmundsson, þjálfari Íslandsmeistara KR í Iceland Express deild karla. Þetta verður í fjórða skipti sem Benedikt fer með lið á Norðurlandamót í Solna og hefur þegar gert tvö lið að Norðurlandameisturum, fyrst 16 ára landslið karla 2004 og svo 18 ára landslið karla í fyrra en í bæði skiptin þjálfaði hann 1988-árganginn.

Benedikt Guðmundsson á NM:
2003 16 ára landslið karla (1986) 4. sæti 3-2, 60%
2004 16 ára landslið karla (1988) 1. sæti 4-1, 80%
2006 18 ára landslið karla (1988) 1. sæti 4-1, 80%
2007 16 ára landslið karla (1991) ?. sæti
15 leikir - 11 sigrar, 4 töp - 73% sigurhlutfall


Sagan:

Sigurhlutfall 16 ára landsliðs karla eftir árum:
2003 (1986) 3-2, 60%
2004 (1988) 4-1, 80%
2005 (1989) 4-1, 80%
2006 (1990) 3-2, 60%
Samtals: 20 leikir, 14 sigrar, 6 töp, 70%

Sætaskipan 16 ára landsliðs karla:
1. sæti - (1) 2004
2. sæti - (1) 2005
3. sæti - (1) 2006
4. sæti - (1) 2003
5. sæti - (0)

Gengi 16 ára liðs karla gegn einstökum landsliðum 2003-2006:

Danmörk - (5 leikir) 4 sigrar og 1 tap, 80%
Finnland - (4 leikir) 2 sigrar og 2 tap, 50%
Noregur - (5 leikir) 4 sigrar og 1 tap, 80%
Svíþjóð - (6 leikir) 4 sigrar og 2 tap, 67%
Samtals: 20 leikir, 14 sigrar, 6 töp, 70%

Norðurlandameistarar 16 ára landsliða karla:
2003 - Svíþjóð
2004 - Ísland
2005 - Svíþjóð
2006 - Svíþjóð


Metin á NM 2003-2006:
Flestir leikir
Hjörtur Halldórsson 10
Þröstur Leó Jóhannsson 10
Örn Sigurðsson 10
Hjörtur Hrafn Einarsson 10

Flest stig
Hjörtur Hrafn Einarsson 215
Jóhann Árni Ólafsson 122
Þröstur Leó Jóhannsson 117
Brynjar Þór Björnsson 90
Örn Sigurðsson 84
Snorri Páll Sigurðsson 72
Rúnar Ingi Erlingsson 70
Sigmar L Björnsson 64
Kristján Rúnar Sigurðsson 63
Brynjar Þór Kristófersson 58
Hörður Axel Vilhjálmsson 58

Flest stig að meðaltali í leik
Jóhann Árni Ólafsson 24,4
Hjörtur Hrafn Einarsson 21,5
Brynjar Þór Björnsson 18
Snorri Páll Sigurðsson 14,4
Rúnar Ingi Erlingsson 14
Sigmar L Björnsson 12,8
Kristján Rúnar Sigurðsson 12,6
Þröstur Leó Jóhannsson 11,7
Brynjar Þór Kristófersson 11,6
Hörður Axel Vilhjálmsson 11,6

Flest stig í einum leik
Hjörtur Hrafn Einarsson 31 (7.5.2005, Finnland)
Jóhann Árni Ólafsson 31 (1.6.2003, Danmörk)
Jóhann Árni Ólafsson 30 (31.5.2003, Noregur)
Jóhann Árni Ólafsson 28 (29.5.2003, Svíþjóð)
Hjörtur Hrafn Einarsson 28 (6.5.2005, Noregur)
Hjörtur Hrafn Einarsson 25 (6.5.2005, Danmörk)
Hjörtur Hrafn Einarsson 24 (8.5.2005, Svíþjóð)
Brynjar Þór Kristófersson 24 (31.5.2003, Noregur)
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Fyrst körfuboltalið íslenskra starfsmanna á Keflavíkurflugvelli, Vikings, árið 1950.  Aftari röð frá vinstri: John Smith, Guðmundur Pétursson, Hörður Sumarliðason, Kristján Júlíusson, Friðrik Bjarnason og Hal Cromie.  Fremri röð frá vinstri: Hjálmar Guðmundsson, Pétur Guðmundsson og Ingi Gunnarsson.  John og Hal voru starfsmenn Lockheed og þjálfuðu íslensku strákana.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið