© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
16.5.2007 | 8:51 | OOJ
Strákarnir mæta Dönum í fyrsta leik í kvöld
Rúnar Ingi Erlingsson er fyrirliði 18 ára liðsins. Myndir: Snorri Örn
Norðurlandamót unglinga hefst í Svíþjóð í dag. Átján ára landsliðið stráka hefur leik gegn Dönum klukkan 19.00 eða stuttu eftir komuna til Svíþjóðar. Íslenska liðið spilaði úrslitaleikinn gegn Svíþjóð þegar þessi árangurinn spilaði sem 16 ára lið fyrir tveimur árum. Íslensku strákarnir mæta Svíum eldsnemma á laugardagsmorguninn eða daginn fyrir að spilað er um sæti á mótinu.

Þegar íslensku strákarnir komust í úrslitaleikinn fyrir tveimur árum þá vann liðið fyrstu fjóra leiki sína þar á meðal Svíþjóð með fjórum stigum, 65-61. Svíarnir hefndu hinsvegar fyrir tapið í úrslitaleiknum þar sem þeir unnu fjögurra stiga sigur, 60-64.

Átta af tólf leikmönnum liðsins í ár voru með fyrir tveimur árum en þeir sem koma nýir inn í liðið eru Víkingur Sindri Ólafsson úr KR, Björgvin Valentínusson og Ari Gylfason úr FSU og svo Baldur Ragnarsson úr Þór Þorlákshöfn. Víkingur og Baldur voru báðir með 16 ára liðinu í fyrra.

Leikmenn liðsins koma frá sjö félögum. Njarðvík á þrjá leikmenn í hópnum og tveir leikmenn koma frá KR, FSu og Val. Keflavík, Þór Þorlákshöfn og Snæfell eiga síðan öll einn leikmann en leikmenn FSu koma upphaflega úr Snæfelli og Selfossi.

Hjörtur Hrafn Einarsson úr Njarðvík og Þröstur Leó Jóhannsson úr Keflavík eru reyndustu leikmenn liðsins en báðir hafa þeir leikið 40 landsleiki og eru mættir á sitt fjórða Norðurlandamót. Hjörtur Hrafn er stigahæstur en hann hefur skorað 566 stig í þessum 40 leikjum eða 14,2 stig að meðaltali í leik.

Hjörtur hefur skorað alls 262 stig á Norðurlandamótinu í Solna og þriðji stigahæsti íslenski leikmaðurinn á eftir Helenu Sverrisdóttur (486 stig) og Brynjari Þór Björnssyni (294). Hjörtur Hrafn á því ágæta möguleika á að verða stigahæsti strákurinn á Norðurlandamótinu í Solna en til þess þarf hann að skora 32 á þessu móti.


18 ára liða karla

Leikir liðsins: (Íslenskur tími)
Miðvikudagur 16. maí 19:00 Ísland-Danmörk
Fimmtudagur 17. maí 16:30 Ísland-Noregur
Föstudagur 18. maí 15:00 Ísland-Finnland
Laugardagur 19. maí 9:00 Ísland-Svíþjóð
Á sunnudeginum, 20. maí, er síðan leikið um sæti


Bakverðir:


Elías Kristjánsson
Númer á treyju: 4
Félag: Njarðvík
Fæðingarár: 1989
Hæð: 187 sm
Landsleikir/stig: 13 leikir, 46 stig
Reynsla af NM: Annað skipti (5 leikir, 10 stig)


Atli Rafn Hreinsson
Númer á treyju: 5
Félag: Snæfell
Fæðingarár: 1989
Hæð: 196 sm
Landsleikir/stig: 12 leikir, 23 stig
Reynsla af NM: Annað skipti (4 leikir, 3 stig)


Víkingur Sindri Ólafsson
Númer á treyju: 7
Félag: KR
Fæðingarár: 1990
Hæð: 190 sm
Landsleikir/stig: 13 leikir, 39 stig
Reynsla af NM: Annað skipti (5 leikir, 19 stig)


Ari Gylfason
Númer á treyju: 8
Félag: FSu
Fæðingarár: 1989
Hæð: 187 sm
Landsleikir/stig: Nýliði
Reynsla af NM: Fyrsta skipti


Rúnar Ingi Erlingsson Fyrirliði
Númer á treyju: 9
Félag: Njarðvík
Fæðingarár: 1989
Hæð: 187 sm
Landsleikir/stig: 26 leikir, 153 stig
Reynsla af NM: Þriðja skipti (10 leikir, 76 stig)


Baldur Ragnarsson
Númer á treyju: 12
Félag: Þór Þorlákshöfn
Fæðingarár: 1990
Hæð: 182 sm
Landsleikir/stig: 13 leikir, 52 stig
Reynsla af NM: Annað skipti (5 leikir, 18 stig)


Páll Fannar Helgason
Númer á treyju: 13
Félag: Valur
Fæðingarár: 1989
Hæð: 186 sm
Landsleikir/stig: 13 leikir, 69 stig
Reynsla af NM: Annað skipti (5 leikir, 21 stig)


Framherjar:


Þröstur Leó Jóhannsson
Númer á treyju: 6
Félag: Keflavík
Fæðingarár: 1989
Hæð: 196 sm
Landsleikir/stig: 40 leikir, 389 stig
Reynsla af NM: Fjórða skiptið (15 leikir, 158 stig)


Örn Sigurðarson
Númer á treyju: 11
Félag: KR
Fæðingarár: 1990
Hæð: 202 sm
Landsleikir/stig: 18 leikir, 173 stig
Reynsla af NM: Þriðja skipti (10 leikir, 84 stig)


Hjalti Friðriksson
Númer á treyju: 14
Félag: Valur
Fæðingarár: 1989
Hæð: 201 sm
Landsleikir/stig: 13 leikir, 29 stig
Reynsla af NM: Annað skipti (5 leikir, 9 stig)


Hjörtur Hrafn Einarsson
Númer á treyju: 15
Félag: Njarðvík
Fæðingarár: 1989
Hæð: 194 sm
Landsleikir/stig: 40 leikir, 566 stig
Reynsla af NM: Fjórða skiptið (15 leikir, 262 stig)


Miðherjar:


Björgvin Valentínusson
Númer á treyju: 10
Félag: FSu
Fæðingarár: 1989
Hæð: 202 sm
Landsleikir/stig: Nýliði
Reynsla af NM: Fyrsta skipti


Þjálfari:


Þjálfari liðsins er Einar Árni Jóhannsson, fyrrum þjálfari deildarmeistara Njarðvíkur í Iceland Express deild karla og nýráðinn þjálfari 1. deildarliðs Breiðabliks. Þetta verður í þriðja skipti sem Einar Árni fer með lið á Norðurlandamót í Solna. Hann gerði 18 ára liðið að Norðurlandameisturum 2004 og hefur farið með bæði liðin sín í úrslitaleik mótsins.

Einar Árni Jóhannsson á NM:
2004 18 ára landslið karla (1985) 1. sæti 4-1, 80%
2005 16 ára landslið karla (1989) 2. sæti 4-1, 80%
2007 18 ára landslið karla (1989) ?. sæti
10 leikir - 8 sigrar, 2 töp - 80% sigurhlutfall


Sagan:

Sigurhlutfall 18 ára landsliðs karla eftir árum:
2003 (1984) 2-2, 50%
2004 (1985) 4-1, 80%
2005 (1987) 4-1, 80%
2006 (1988) 4-1, 80%
Samtals: 19 leikir, 14 sigrar, 5 töp, 74%

Sætaskipan 18 ára landsliðs karla:
1. sæti - (2) 2004, 2006
2. sæti - (1) 2003
3. sæti - (1) 2005
4. sæti - (0)
5. sæti - (0)

Gengi 18 ára liðs karla gegn einstökum landsliðum 2003-2006:
Danmörk - (4 leikir) 4 sigrar og 0 töp, 100%
Finnland - (5 leikir) 1 sigur og 4 töp, 20%
Noregur - (4 leikir) 4 sigrar og 0 töp, 100%
Svíþjóð - (6 leikir) 5 sigrar og 1 tap, 83%
Samtals: 19 leikir, 14 sigrar, 5 töp, 74%

Norðurlandameistarar 18 ára landsliða karla:
2003 - Finnland
2004 - Ísland
2005 - Svíþjóð
2006 - Ísland

Metin á NM 2003-2006:
Flestir leikir
Hörður Hreiðarsson 10
Brynjar Þór Björnsson 10
Hörður Axel Vilhjálmsson 10
Ólafur Halldór Torfason 10
Sigurður Gunnar Þorsteinsson 10
Finnur Atli Magnússon 9

Flest stig
Brynjar Þór Björnsson 204
Hörður Axel Vilhjálmsson 163
Jóhann Árni Ólafsson 113
Kristján Rúnar Sigurðsson 96
Sigurður Gunnar Þorsteinsson 94
Ólafur Halldór Torfason 76
Guðmundur Jónsson 70
Hörður Hreiðarsson 60
Magnús Pálsson 60
Pavel Ermolinskij 57
Ólafur Aron Ingvason 54

Flest stig að meðaltali í leik
Jóhann Árni Ólafsson 22,6
Brynjar Þór Björnsson 20,4
Kristján Rúnar Sigurðsson 19,2
Guðmundur Jónsson 17,5
Hörður Axel Vilhjálmsson 16,3
Ólafur Aron Ingvason 13,5
Magnús Pálsson 12
Pavel Ermolinskij 11,4
Þorleifur Ólafsson 10

Flest stig í einum leik
Hörður Axel Vilhjálmsson 35 (24.5.2006, Svíþjóð)
Kristján Rúnar Sigurðsson 34 (23.5.2004, Svíþjóð)
Jóhann Árni Ólafsson 31 (23.5.2004, Svíþjóð)
Brynjar Þór Björnsson 28 (7.5.2005, Finnland)
Kristján Rúnar Sigurðsson 27 (22.5.2004, Noregur)
Brynjar Þór Björnsson 26 (8.5.2005, Noregur)
Hörður Axel Vilhjálmsson 26 (25.5.2006, Noregur)
Brynjar Þór Björnsson 25 (6.5.2005, Danmörk)
Jóhann Árni Ólafsson 24 (20.5.2004, Danmörk)
Jóhann Árni Ólafsson 24 (19.5.2004, Svíþjóð)
Hörður Axel Vilhjálmsson 24 (26.5.2006, Danmörk)
Brynjar Þór Björnsson 24 (26.5.2006, Danmörk)



Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
George Byrd, Skallagrími, stangar Grindvíkinginn Davíð Pál Hermannsson í 2. leik liðanna í úrslitakeppni Iceland Express deildarinnar 19. mars 2006.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið