© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
 
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
26.4.2007 | 15:09 | oddur
George Byrd með flest varin skot í Iceland Express deild karla
George Byrd í bikarúrslitaleiknum gegn ÍR (mynd: Gunnar Freyr)
George Byrd, leikmaður Hamar/Selfoss, var með flest varin skot í Iceland Express deild karla í vetur.

Byrd varði 38 skot í 19 leikjum sem gera 2 varin skot að meðaltali í leik. Byrd var einnig öflugur í fráköstum (13,1) og stolnum boltum (1,58) og því lykilmaður í vörn síns liðs.

Egill Jónasson, leikmaður UMFN, var með næst flest varin skot í vetur. Egill varði 35 skot í 22 leikjum sem gera 1,59 varin skot að meðaltali í leik. Það er athyglisvert að Agli tókst þetta þrátt fyrir að leika aðeins 15,3 mínútur að meðaltali í leik.

Kevin Smith, leikmaður Hauka, var sá leikmaður sem var með flest varin skot að meðaltali í leik. Hann varði að meðaltali 2,20 skot í leik en lék ekki nægilega marga leiki til þess að geta unnið tölfræðiverðlaunin.

Hér fyrir neðan er listi yfir þá sem að vörðu flest skot í Iceland Express deild karla á tímabilinu

Nafn Lið Meðaltal (Leikir, Stoðsendingar)

1 Kevin Smith Haukar 2,20 (10, 22)
2 George Byrd Hamar/Selfoss 2,00 (19, 38)
3 Egill Jónasson Njarðvík 1,59 (22, 35)
4 Friðrik E. Stefánsson Njarðvík 1,50 (22, 33)
5 Kareem Johnson Fjölnir 1,47 (17, 25)
6 Jeremiah Sola KR 1,45 (22, 32)
7 Ómar Ö. Sævarsson ÍR 1,32 (22, 29)
8 Robert Hodgson Þór Þ. 1,27 (22, 28)
9 Jón N. Hafsteinsson Keflavík 1,17 (18, 21)
10Darrell Flake Skallagrímur 1,14 (22, 25)

Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Æfingar fóru fram hjá landsliðsúrtaki U18 liði stúlkna um jólin 2008 og var þessi mynd tekin af einni æfingunni í Hveragerði.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið