© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
20.4.2007 | 18:25 | oddur
Hver verður MVP?
Þessir kappar hafa átt frábært tímabil
Nú þegar deildarkeppninni í NBA er lokið styttist í að mikilvægasti leikmaður tímabilsins verði valinn.

Það er alltaf mikið rætt um þetta og körfuboltasérfræðingar hafa verið að velta þessu fyrir sér í allan vetur. Flestir eru á því að Dirk Nowitzki eða Steve Nash hljóti hnossið í ár en sitt sýnist þó hverjum.

Steve Nash hefur leikið frábærlega í vetur en hann hefur unnið MVP titilinn síðustu tvö ár. Verði Nash valinn í ár kemst hann í góðan félagskap en aðeins Larry Bird og Bill Russell hafa fengið viðurkenninguna 3 ár í röð. Dirk Nowitzki hefur átt mjög gott tímabil og lið hans, Dallas Mavericks, voru með besta árangurinn í deildinni í vetur. Aðrir kappar hafa verið nefndir sem verðugir kandidatar og má þar nefna Kobe Bryant, Lebron James og Dwayne Wade.

Bill Simmons hefur sett saman áhugaverðan pistil þar sem hann stiklar á stóru yfir leikmenn deildarinnar. Hann setti saman lista þar sem hann byrjar á botninum og vinnur sig upp. Þetta er skemmtileg lesning þar sem ekkert er tekið of hátíðlega.

Fyrri hluti pistilsins

Seinni hluti pistilsins
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá Smáþjóðaleikunum á Möltu 1993.  Albert Óskarsson og Guðmundur Bragason í leik gegn Möltu.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið