© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
18.4.2007 | 20:56 | RG
Verður Logi bjargvættur á Spáni?
Logi Gunnarsson heldur til Spánar í fyrramálið
Körfuknattleiksmaðurinn Logi Gunnarsson hefur gert samning út tímabilið við spænska liðið Gijon í 1. deildinni á Spáni en sú deild heitir LEB 1. Logi fer rakleiðis til Spánar í fyrramálið en samningar millum hans og liðsins náðust í dag og mun Logi fara á sína fyrstu æfingu seint annað kvöld og svo er leikur strax á föstudag. Logi hefur dvalið síðustu daga hér heima á Íslandi eftir að finnska liðið ToPo féll úr fyrstu umferð úrslitakeppninnar.

Ég fékk hringingu frá umboðsmanni mínum á Spáni í morgun og hann tjáði mér að það væri mikill áhugi frá Gijon að fá mig í sínar raðir,” sagði Logi og nú síðdegis voru samningar í höfn. Gijon er á Norður Spáni og um þessar mundir er stutt í úrslitakeppnina en Gijon berst fyrir tilverurétti sínum í deildinni.

Logi á ekki von á því að fara aftur til ToPo í Finnlandi þó hann útiloki ekki þann kost en Logi segir deildirnar á Spáni mun sterkari en á Norðurlöndum. LEB 1 er ein af sterkustu deildunum í Evrópu en hún er næst efsta deildin á Spáni. Ég vil leika á Spáni eða Ítalíu og LEB 1 deildin verður sú sterkasta sem ég hef leikið í til þessa. Hvort ég fari aftur til ToPo er undir því komið hvernig mér mun ganga að koma mér að hjá liði á Spáni,” sagði Logi og segir leikmaðurinn að áhugi frá liðum á Spáni hafi verið töluverður í sinn garð í mest allan vetur.

Gijon er í 17. sæti LEB 1 deildarinnar og berst liðið fyrir tilverurétti sínum í deildinni. Liðið þarf að taka þátt í nokkurskonar úrslitakeppni botnliða um áframhaldandi sæti í deildinni. Samningur Loga við Gijon kveður á um að hann verði hjá félaginu uns það hefur lokið sinni þátttöku í mótinu.

Þess má geta að Damon Johnson fyrrum leikmaður Keflavíkur leikur í LEB 1 deildinni með Hospitalet svo Logi hittir fyrir á Spáni kunnugleg andlit en á Spáni leikur einnig félagi Loga úr landsliðinu, Jakob Örn Sigurðarson þá og Pavel Ermolinskij.

Tekið af vef vf.is

Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Hörður Axel Vilhjálmsson sækir að körfunni í úrslitaleik 18 ára landsliða karla á NM 2006.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið