© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
17.4.2007 | 11:46 | oddur
Fjölnir í Iceland Express deild kvenna
Lið Fjölnis tryggði sér í gær sigur í 2. deild kvenna í eftir að hafa sigrað lið Snæfells 86-68 í Rimaskóla.

Með sigrinum tryggði Fjölnir sér efsta sætið í deildinni og sæti í Iceland Express deild kvenna á næsta tímabili. Það hefur verið mikil barátta í 2. deild kvenna á þessu tímabili og þar kepptu mörg efnileg lið.

Fjölnir var í mikilli baráttu við KR í allan vetur um toppsætið en liðin skiptu sigrum á milli sín í innbyrðis viðureignum liðanna. KR var þó með betra stigahlutfall í innbyrðis viðureignunum og því varð Fjölnir að ná fleiri stigum í deildinni en KR til þess að komast upp um deild.

Þegar KR tapaði fyrir Skallagrím í Borgarnesi á föstudaginn opnaðist möguleiki fyrir Fjölnisstúlkur og þær nýttu það vel með því að sigra Snæfell í gær.

Glæsilegur árangur hjá liði Fjölnis. Það verður gaman að fylgjast með þeim í Iceland Express deildinni á næsta tímabili.

Hér má sjá myndbrot úr leiknum í gær sem að heimasíða Fjölnis útbjó.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Hörður Axel Vilhjálmsson sækir að körfunni í úrslitaleik 18 ára landsliða karla á NM 2006.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið