© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
16.4.2007 | 11:46 | oddur
Verða KR-ingar Íslandsmeistarar?
Vörn KR-inga hefur verið góð í lok leikjanna
Leikur 4 í úrslitaeinvígi Iceland Express deildar karla verður í kvöld klukkan 20:00 í DHL-Höllinni. KR er yfir í einvíginu 2-1 og geta því tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri í kvöld.

UMFN lék vel í fyrsta leiknum og sigraði 99-78. Leikir 2 og 3 voru svo æsispennandi en KR náði að tryggja sér sigur í þeim.

Í síðustu tveimur leikjum tókst KR að komast yfir þegar lítið var eftir af leikjunum. Njarðvíkingar hafa verið að leika mjög vel þar til í lok leikjanna. Þá hefur KR tekið öll völd á vellinum, leikið hörkuvörn og skorað mikilvægar körfur.

Úrslitaeinvígið hefur verið mikið augnakonfekt. Það hefur verið ótrúlega góð stemning á leikjunum og liðin hafa boðið uppá frábæra leiki. Það má búast við frábærri skemmtun í kvöld en þeir sem að komast ekki á leikinn geta horft á hann í beinni útsendingu á Sýn.

Myndir úr leik 3.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Ægir Þór Steinarsson, var fyrirliði íslenska U-18 ára liðsins, sem varð Norðurlandameistari vorið 2009 í Solna í Svíþjóð. Hér sækir hann að Norðmönnum en Ísland vann 75-60.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið