© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
6.4.2007 | 0:58 | SÖA
Njarðvík og KR í úrslit
Njarðvík og KR unnu oddaleiki undanúrslita Iceland Express deildar karla í kvöld.


Njarðvíkingar unnu öruggan sigur á Grindavík, 93-70, eftir að hafa leitt allan leikinn. Friðrik Stefánsson og Jeb Ivey voru stigahæstir hjá Njarðvík með 20 stig en Jonathan Griffin var atkvæðamestur Grindvíkinga, einnig með 20 stig.
(mynd: Víkurfréttir/JBÓ)


KR ingar fóru erfiðari leið í úrslitaleikinn, en þeir lögðu Snæfellinga eftir framlengdan leik í vesturbæ Reykjavíkur, 76-74. Staðan að loknum venjulegum leiktíma var 68-68, en Brynjar Þór Björnsson skoraði þriggja stiga körfu þegar 2 sekúndur voru eftir af venjulegum leiktíma og jafnaði leikinn. KR ingar reyndust svo sterkari í framlengingunni og unnu eins og áður sagði með 2 stigum.
(mynd: Snorri Örn)

Njarðvík og KR mætast í Njarðvík í fyrsta leik úrslitanna mánudaginn 9. apríl kl. 20:00, en leikurinn verður einnig sýndur beint á SÝN.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Marel Guðlaugsson náði stórum áfanga í leik með Haukum gegn ÍR þann 3. mars 2007 að verða leikjahæsti leikmaður úrvalsdeildar karla fyrr og síðar.  Hann lék þá sinn 410. leik í deildinni og fór þar með fram úr Guðjóni Skúlasyni.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið