© 2000-2025 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
     
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
31.3.2007 | 11:00 | oddur
Oddaleikur Hauka og ÍS í dag.

Það verður sannkallaður stórleikur að Ásvöllum í Hafnarfirði klukkan 16:00 í dag. Þá mætast Haukar og ÍS í 5. leik liðanna í úrslitakeppni Iceland Express deildar kvenna. Þetta er hreinn úrslitaleikur um réttinn til þess að leika í úrslitum Iceland Express deildarinnar.

Heimavöllurinn hefur skipt sköpum í einvíginu til þessa en Haukar eru með heimavallarréttinn. Fyrsti leikurinn fór 76-61 fyrir Hauka. ÍS sigraði leik 2 84-74, Haukar þann þriðja 78-61 og í síðasta leik sigraði svo ÍS með 10 stiga mun 87-77.

Það verður því mjög áhugavert að fylgjast með leiknum í dag. Haukar voru fyrirfram taldar sigurstranglegri aðilinn enda höfðu þær sigrað alla leiki liðanna í vetur og enduðu á toppi deildarinnar á meðan ÍS var í 4. sæti. Í liði ÍS eru þó margir sterkir leikmenn og þær hafa sýnt að þær eru sýnd veiði en ekki gefin.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Lárus Friðþjófsson, unglinganefndarmaður, stóð vaktina á grillinu þegar leikmenn íslensku unglingalandsliðanna hittust til að fagna góðum árangri U18 ára liðs drengja sumarið 2009. Liðið varð norðurlandameistari í maí 2009.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið