© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
20.3.2007 | 10:40 | OOJ
Sagan ekki sammála um úrslitin í kvöld
Úr fyrsta leik KR og ÍR
Í kvöld fara fram tveir oddaleikir í átta liða úrslitum Iceland Express deildar karla þegar KR-ingar taka á móti ÍR-ingum í DHL-Höllinni klukkan 19.15 og Skallagrímsmenn og Grindvíkingar mætast í Fjósinu í Borgarnesi klukkan 20.00. Þetta verður 23. og 24. sinn sem þarf oddaleik til þess að skera út um sæti í undanúrslitum og af því tilefni skoðaði KKÍ.is aðeins söguna og hverjar séu mestu líkurnar að leikirnir fari í kvöld.

Þegar litið er á úrslit fyrri úrslitakeppna og hvernig hefur farið í oddaleikjum um sæti í undanúrslitum þá stendur sagan bæði með heima- og útiliðinum í kvöld. Meiri líkur eru þó að heimaliðin (KR Skallagrímur) vinni en þau hafa unnið í 91% tilfella í sömu stöðu. Þau lið sem hafa unnið annan leikinn og tryggt sér oddaleikinn í leiknum á undan (KR og Skallagrímur) hafa hinsvegar aðeins fimm sinnum tekist að vinna tvo leiki í röð og slá andstæðinga sína út eftir að hafa tapað fyrsta leik einvígisins. Það gerir bara 23% sigurhlutfall.

Sagan var heldur ekki hliðholl KR og Skallagrím eftir að þau töpuðu fyrsta leik sínum á heimavelli en aðeins 8 af 18 liðum höfðu náð að tryggja sér oddaleik í þeim einvígum í sögu úrslitakeppninnar þar sem þurft hefur að vinna tvo leiki til að komast áfram. Um leið og oddaleikurinn er tryggður stóraukast líkurnar því 6 af þessum 8 liðum hafa síðan unnið oddaleikinn á heimavelli, nú síðast KR-ingar gegn Snæfelli í fyrra.

Það hafa aðeins tvö lið verið slegin út á heimavelli í oddaleik um sæti í undanúrslitum. Það eru lið Grindvíkinga árið 1998 og lið Hauka árið 2003. Grindavík var deildarmeistari 1998 og tapaði fyrir ÍA sem endaði í 8. sæti. Haukar voru í 3. sæti 2003 en töpuðu fyrir Tindastól sem var í 6. sæti. Tveir aðilar í leikjum kvöldsins komu við sögu í þessum leikjum og hafa jafnframt misgóðar minningar frá þeim. Benedikt Guðmundsson, núverandi þjálfari KR, var þjálfari Grindvíkinga sem töpuðu þarna svo óvænt og Axel Kárason, núverandi leikmaður Skallagríms, var leikmaður Tindastóls sem vann á Ásvöllum. Axel skoraði 11 stig í leiknum.

Í þessum tveimur sögulegu útisigrum var það einkum einn leikmaður í liði gestanna sem gerði útslagið í jöfnum leik. Skagamaðurinn Damon Johnson skoraði 42 stig í eins stigs sigri Skagamanna í framlengingu 1998 og Clifton Cook hjá Tindastól skoraði 39 stig í fjögurra stiga sigri gegn Haukum 2003.

Oddaleikir um sæti í undanúrslitum:
1995: Njarðvík 89-72 KR
1996: Haukar 73-71 ÍR
1996: Keflavík 83-77 KR
1998: Grindavík 81-82 (76-76) ÍA
1998: KR 82-73 Tindastóll
1998: Njarðvík 88-67 KFÍ
2000: Haukar 84-77 Þór Ak.
2000: Grindavík 112-70 Keflavík
2001: Njarðvík 87-57 Skallagrímur
2001: Tindastóll 79-75 Grindavík
2002: Keflavík 94-84 Haukar
2002: Njarðvík 99-92 Breiðablik
2002: KR 99-56 Hamar
2003: Grindavík 97-73 Hamar
2003: Keflavík 115-84 ÍR
2003: Haukar 85-89 Tindastóll
2004: Grindavík 89-84 KR
2004: Keflavík 98-96 Tindastóll
2005: Keflavík 80-75 Grindavík
2005: Snæfell 116-105 KR
2005: Fjölnir 72-70 Skallagrímur
2006: KR 67-64 Snæfell
2007: KR - ÍR
2007: Skallagrímur - Grindavík
Sigurhlutfall:
Heimalið: 20-2, 91%
Sigurvegari annars leiks: 5-17, 23%
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Lið ÍBA og ÍR sem áttust við í æfingaleik árið 1954. Aftari röð frá vinstri: Hermann Sigtryggsson, Hörður Tuliníus, Gunnar Petersen, Garðar Ingjaldsson, Ingi Þór Stefánsson og Einar Helgason liðsmaður ÍBA. Fremri röð frá vinstri: Einar Gunnlaugsson, Páll Stefánsson, Sigurður P. Gíslason, Jón Stefánsson og Helgi Jóhansson.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið