© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
16.3.2007 | 21:10 | oddur
Úrslit kvöldsins í Iceland Express deildinni
Nú er leikjum kvöldsins í Iceland Express deild karla nýlokið. Báðir leikirnir voru æsispennandi, úrslitin réðust á lokasekúndunum og eftir framlengingu.

Njarðvík vann nauman sigur á Hamri/Selfoss 79-75 eftir að Hamar/Selfoss hafði leitt mestan hluta seinni hálfleiksins. Staðan var 63-70 fyrir Hamri/Selfoss um miðjan seinni hálfleik. Hamar/Selfoss leiddu með einu stigi þegar 30 sekúndur voru eftir af leiknum og George Byrd, miðherji Hamars/Selfoss fékk að auki 2 vítaskot. Hann hitti þó ekki úr þeim og Brenton Birmingham skoraði fyrir Njarðvík í næstu sókn. Njarðvíkingar náðu síðan að auka muninn og sigra með 4 stigum.

Í Borgarnesi var ekki síður spennandi leikur. Þar var skorað heldur meira en eftir venjulegan leiktíma var jafnt og því þurfti að framlengja. Í framlengingunni var UMFG sterkari aðilinn og náði að sigra. Lokatölur voru 105-112. Skallagrímur verður því að sigra á útivelli á sunnudaginn.

Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá leik Vals og Hauka í Laugardalshöll árið 1983.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið