© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
         
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
15.3.2007 | 10:47 | oddur
Úrslitakeppnin hefst í kvöld
Gunnar Einarsson í leik gegn ÍR fyrr í vetur (mynd: vf.is)
Úrslitakeppni Iceland Express deildar karla hefst í kvöld. Það verða tveir æsispennandi leikir í kvöld og fjörið heldur svo áfram á morgun þegar hinar tvær viðureignirnar hefjast.

Í kvöld mætast Snæfell og Keflavík í Stykkishólmi og KR fær ÍR í heimsókn í DHL-Höllina í Vesturbænum.

Snæfell og Keflavík hafa leikið marga spennuleiki í gegnum tíðina og má búast við skemmtilegum leik í kvöld í Stykkishólmi. Snæfell sigraði báða leiki liðanna í Iceland Express deildinni í vetur. Sá fyrri í Stykkishólmi endaði 80-67 en sá síðari 81-86. Sá leikur var í síðustu umferð Iceland Express deildarinnar og var æsispennandi. Það verður því fróðlegt að sjá hvernig leikurinn í kvöld þróast. Leikurinn hefst klukkan 19:15.

Leikur KR og ÍR hefst klukkan 20:00 í kvöld og verður hann í beinni útsendingu á Sýn. KR sigraði báða leiki liðanna í Iceland Express deildinni í vetur. Þann fyrri 66-81 í Seljaskóla og þann seinni 89-81 í DHL-Höllinni. Seinni leikurinn var æsispennandi og margir telja að þessi viðureign geti orðið gífurlega spennandi.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Erlingur Hannesson, fararstjóri, og Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari U18 kk, stigu villtan stríðsdans þegar strákarnir í átján ára liðinu tryggðu sér Norðurlandameistaratitilinn í Solna í Svíþjóð í maí 2009. Strákarnir lögðu Finna í úrslitaleik og þeir félgar stóðust ekki mátið og tóku villt dansspor á parketinu í Solna við mikinn fögnuð viðstaddra.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið