© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
14.3.2007 | 7:28 | oddur
Lokaumferð Iceland Express deildar kvenna í kvöld
Tamara Bowie tekur frákast í leik gegn Haukum í síðustu umferð
Síðasta umferðin í Iceland Express deild kvenna verður leikin í kvöld. Allir leikirnir hefjast klukkan 19:15.

Það verður rosalegur leikur í Smáranum í kvöld þegar Breiðablik tekur á móti Hamri. Þetta er hreinn úrslitaleikur um sæti í Iceland Express deild kvenna á næsta ári. Leikir liðanna í vetur hafa verið spennandi en Breiðablik hefur sigrað 2 af 3 leikjum liðanna sem að búnir eru. Hamar sigraði fyrsta leikinn í Hveragerði stórt 84-59 en Breiðablik sigraði þann næsta í Smáranum 70-59. Breiðablik sigraði svo síðast þegar liðin mættust í Hveragerði 74-80.

Það verður því gaman að fylgjast með síðasta leik tímabilsins hjá þessum liðum en bæði liðin hafa tekið miklum framförum í síðustu leikjum.

Í Grindavík mætast UMF og ÍS. Þessi lið eru í 3. og 4. sæti deildarinnar og örugg um sæti í úrslitakeppninni. Síðasti leikur liðanna fór 47-67 fyrir UMFG.

Í Keflavík mætast toppliðin í deildinni þegar Haukar koma í heimsókn. Leikir liðanna í vetur hafa verið spennandi en Keflavík er eina liðið sem að hefur sigrað Hauka í vetur. Það var einmitt þegar liðin mættust síðast í Keflavík. Lokatölur þá voru 92-85.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Ari Gunnarsson þjálfari kvennaliðs Hamars og leikmaður meistarflokks Hamars er hér með no-look sendingu í leik með Skallagrím gegn Njarðvík einhverntímann snemma á tíunda áratugnum. Rodney Robinson, Njarðvík, er til varnar.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið