© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
11.3.2007 | 21:38 | oddur
Bikarúrslit yngri flokka - sunnudagurinn
Ægir Þór Steinarsson var maður leiksins í 10. flokki ka. (mynd: karfan.is)
Bikarúrslitum yngriflokka lauk í dag með 4 leikjum. Haukar, Fjölnir og Keflavík urðu bikarmeistarar í dag.

Í 9. flokki kvenna urðu Haukar bikarmeistarar eftir 55-23 sigur á Hamri/Selfoss. Guðbjörg Sverrisdóttir valin kona leiksins en hún skoraði 26 stig, tók 11 fráköst og stal 7 boltum.

Fjölnir A og Fjölnir B mættust í bikarúrslitaleik karla í 10. flokki þar sem A-liðið fór með öruggan 69-41 sigur af hólmi og var Ægir Þór Steinarsson, A liði Fjölnis, valinn maður leiksins en hann var með 23 stig, tók 14 fráköst, gaf 6 stoðsendingar og stal tveimur boltum í leiknum.

Keflavík og Haukar mættust í unglingaflokki kvenna. Haukar höfðu nauman sigur 65-64 eftir æsispennandi leik. Sigrún Ámundadóttir, Haukum, var valin kona leiksins en hún gerði 21 stig í leiknum og tók 12 fráköst.

Í Drengjaflokki vann Keflavík 67-55 sigur á FSu. Þröstur Leó Jóhannsson var valinn maður leiksins en hann skoraði 26 stig, tók 8 fráköst, varði 5 skot, stal 4 boltum og gaf 2 stoðsendingar.

Hægt er að lesa umfjöllun um leikina á karfan.is.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá ársþingi KKÍ snemma á tíunda áratugnum. Á myndinni má meðal annars sjá Pétur Hrafn Sigurðsson, Hannes S. Jónsson, Guðjón Þorsteinsson, Eyjólf Guðlaugsson, Jón Einarsson, Kolbein Pálsson, Ingólf Jónsson, Sólrúnu Önnu Rafnsdóttur og Sigurð Valgeirsson.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið