© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
28.9.2015 | 22:25 | Stefán | Lengjubikarinn
Lengjubikar kvenna 2015: Hin fjögur fræknu
Nú í kvöld skýrðist hvaða lið kepptu til undanúrslita í Lengjubikar kvenna eða hinna fjögurra fræknu. Að lokinni riðlakeppninni verða það Haukar, Grindavík, Keflavík og Valur sem leika til undanúrslita. En leikið verður á Sauðárkróki á fimmtudag.


Undanúrslit: Fimmtudagur 1. október · Sauðárkrókur
Kl. 18:15 - Keflavík-Valur
Kl. 20.30 - Haukar-Grindavík

Úrslitaleikur: Laugardagur 3. október · Sauðárkrókur
Kl. 14:00 - Sigurvegarar undanúrslitanna

Riðlakeppnin fór fram í þremur riðlum og fóru sigurvegarar hvers riðils áfram ásamt besta öðru sætinu. Til að finna út hvaða lið var besta annað sætið var notast við mesta stigamuninn úr riðlakeppninni. Var það lið Vals sem var með besta árangurinn í öðru sæti og fer liðið því áfram.

Í undanúrslitum raðast liðin þannig að liðið með besta árangurinn mætir liðinu með lakasta árangurinn. Haukar voru með besta árangurinn og Valur þann lakasta. Þar sem þessi lið voru saman í riðlakeppninni mætast þau ekki í undanúrslitum. Þ.a.l. mæta Haukar liðinu með næsta lakasta árangurinn og það er Grindavík. Undanúrslitin verða því Haukar-Grindavík og Keflavík-Valur.

Útreikningar:
1 Haukar 3-0 sigur/tap - 98 stig í plús
2 Keflavík 3-0 sigur/tap - 97 stig í plús
3 Grindavík 3-0 sigur/tap - 87 stig í plús
4 Valur 2-1 sigur/tap - 90 stig í plús
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Björgvin Rúnarsson og Sigmundur Már Herbertsson á leið að fara dæma leik saman á Smáþjóðaleiknum á Kýpur 2009. Var þetta í fyrsta skipti sem tveir íslenskir dómarar dæma saman leik á Smáþjóðaleikunum.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið