© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
 
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
5.3.2007 | 11:44 | oddur
Leikir kvöldsins í Iceland Express deildunum.
Victoria Crawford (13) skoraði 49 stig í síðasta leik (mynd: vf.is)
Í kvöld verða leiknir 2 leikir í Iceland Express deild karla og 1 leikur í Iceland Express deild kvenna. Allir leikirnir hefjast klukkan 19:15.

Hjá körlunum mætir Grindavík nágrönnum sínum frá Keflavík og Tindastóll tekur á móti KR. ÍS mætir svo Breiðablik í Iceland Express deild kvenna.

Viðureign Grindavíkur og Keflavíkur er áhugaverð en Keflavík er í 5. sæti deildarinnar og Grindavík í því 6. Grindavík á enn möguleika á því að komast upp fyrir Keflavík en til þess að það takist þurfa þeir að sigra með meira en 4 stigum í kvöld og treysta svo á hagstæð úrslit í lokaumferðinni á fimmtudag. Keflavík sigraði fyrri leik liðanna 90-86 .

Á Sauðárkróki tekur Tindastóll, sem að er í 9. sæti deildarinnar á móti KR sem að er í baráttu um 2. sætið. Ef að KR sigrar í kvöld verða þeir einir í 2. sætinu með 34 stig. KR sigraði fyrri leik liðanna í deildinni 109-89. Liðin mættust einnig í 16 liða úrslitum Lýsingarbikarsins. Þar sigraði KR 84-96 í hörkuleik.

Iceland Express deild karla.

ÍS tekur á móti Breiðablik í Kennaraháskólanum. ÍS er öruggt í 4. sæti deildarinnar en Breiðablik er í því 5. og er í mikilli fallbaráttu við Hamar. ÍS hefur sigrað alla leiki liðanna í vetur en Breiðablik hefur verið að sækja í sig veðrið undanfarið.

Iceland Express deild kvenna.

Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Íslandsmeistarar Breiðabliks 1995.  Aftari röð frá vinstri: Sigurður Hjörleifsson þjálfari, Guðrún Kristjánsdóttir, Ragnheiður Kristinsdóttir, Hrefna Hugósdóttir, Elísa Vilbergsdóttir, Unnur Henrysdóttir, Svana Bjarnadóttir, Hanna Kjartansdóttir, Hannes S. Jónsson varaformaður, Sævar Guðbergsson stjórnarmaður og Jóhann Árnason formaður.  Fremri röð frá vinstri: Hildur Ólafsdóttir, Erla Hendriksdóttir, Penny Peppas, Olga Færseth og Sólveig Kjartansdóttir.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið