© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
1.3.2007 | 13:15 | oddur
4 leikir í Iceland Express deild karla í kvöld
Ná Brenton og félagar að tryggja sér deildarmeistaratitilinn í kvöld?
Í kvöld hefst 20. umferð Iceland Express deildar karla með fjórum leikjum. Spennan í deildinni er gífurleg og eru allir leikirnir mikilvægir fyrir liðin. Njarðvík getur tryggt sér deildarmeistaratitilinn með sigri í kvöld.

Það verður þó ekki auðvelt fyrir Njarðvíkinga að sækja stig í Grafarvoginn en Fjölnismenn eru í gríðarlega harðri fallbaráttu og munu því örugglega berjast kröftuglega í þessum leik. Fyrri leikur liðanna endaði með sigri Njarðvíkinga 96-82.

Skallagrímur - Þór Þorlákshöfn ætti ekki síður að verða mikill baráttuleikur en með sigri í þessum leik kæmu Þórsarar sér í töluvert góða stöðu til þess að forða sér frá falli. Skallagrímur er hins vegar í harðri baráttu við KR um annað sætið í deildinni. Skallagrímur sigraði Þór fyrr í vetur 80-98.

Keflavík mætir Tindastól á heimavelli en Tindastóll er í mikilli baráttu við Hamar/Selfoss um að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni. Keflvíkingar mega ekki slaka á því að Grindavík er aðeins 2 stigum á eftir þeim í deildinni. Fyrri leikur liðanna fór 83-98 fyrir Keflavík.

Í Stykkishólmi tekur Snæfell á móti UMFG en bæði lið eru í baráttu um sæti í úrslitakeppninni. Ef að annað hvort liðanna nær að vinna sig upp um sæti þá gætu þessi lið mæst í úrslitakeppninni. Snæfell sigraði fyrri leik liðanna 68-75.

Umferðin klárast svo á morgun með 2 leikjum. Það er ljóst að það er nóg af skemmtilegum leikjum í kvöld og hvetjum við alla til þess að mæta á völlinn og fylgjast með leikjunum.

Staðan í deildinni.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá Smáþjóðaleikunum á Möltu 1993.  A-landslið karla hlýðir á íslenska þjóðsönginn við verðlaunaafhendingu mótsins.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið