© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
27.1.2007 | 8:29 | FÍR
Undanúrslit í Lýsingarbikar á sunnudag og mánudag!!
Á sunnudag og mánudag verða undanúrslit í Lýsingarbikar karla og kvenna.

Spennan verður mikil á sunnudag og mánudag þegar leikið verður um réttinn að komast í Laugardalshöll laugardaginn 17. febrúar í stærstu einstöku leiki á hverju tímabili.

Hjá konunum verður alger stórleikur á dagskrá á sunnudaginn klukkan 17:00 í Grindavík þegar Íslandsmeistarar Hauka mæta í heimsókn. Það er óhætt að mæla með þessum leik þar sem þessi lið hafa verið að sýna frábæran körfubolta í vetur.

Hinn undanúrslitaleikurinn hjá konunum verður viðureign Keflavíkur og Hamars og fer sá leikur fram í Keflavík á mánudagskvöld klukkan 19:15. Það verður á brattann að sækja hjá gestunum en allt getur gerst í bikarkeppnum.

Báðir karlaleikir fara fram á sunnudagskvöld klukkan 19:15.

Athygli vekur að þetta eru sömu 4 lið og sömu 2 viðureignir og voru í undanúrslitum bikarkeppninnar árið 2001. Þá eins og nú áttust Grindvíkingar og ÍR við í Grindavík og Keflvíkingar öttu kappi við Hamarsmenn í Keflavík en leikurinn að þessu sinni fer fram í Hveragerði.

Það má búast við mjög fjörugum leikjum því það er mjög mikið undir. Staða liða í deildinni segir ekki svo mikið þegar komið er svona langt í keppninni eins og sannaðist 2001 þegar ÍR sigraði í Grindavík og Hamarsmenn sigruðu í Keflavík í framlengingu.

Hvað gerist 2007???
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Berglind Gunnarsdóttir reynir hér að vinna boltann í uppkasti í leik Íslands og Danmerkur í U-16 kvenna á Norðurlandamóti ungmenna í Solna í Svíþjóð 2009. Danmörk vann í hörkuleik 69-64 en Ísland leiddi mest allan leikinn.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið