© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
8.3.2001 | 22:37 | bl
Njarðvíkingar deildarmeistarar þrátt fyrir tap
Það fór svo að bæði liðin sem áttu möguleika á deildarmeistaratitlinum töpuðu leikjum sínum í kvöld. Njarðvíkingar töpuðu fyrir Grindvíkingum í Grindavík, 98-96 og KR-ingar töpuðu fyrir Tindastól á Sauðárkróki 85-70. Þrjú lið luku deildarkeppninni með jafn mörg stig, Njarðvík, Tindastóll og Keflavík, en Njarðvíkingar standa best í innbyrðisviðureignum þessara þriggja liða og eru því deildarmeistarar.

Önnur úrslit í kvöld urðu þau að Keflavík sigraði KFÍ 115-68, Hamar vann Skallagrím 89-81, ÍR tapaði heima fyrir Haukum 66-82 og Valsmenn kvöddu Epson-deildina með 91-84 sigri á Þór.

Það er því ljóst hvaða lið mætast í úrslitakeppninni sem hefst nk. fimmtudag, lokastaða í deildinni innan sviga:
UMFN (1) - Skallagrímur (8)
Tindastóll (2) - UMFG (7)
Keflavík (3) - Hamar (6)
KR (4) - Haukar (5)

Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Fyrstu Íslandsmeistararnir fengu ekki verðlaunagrip ti eignar 1952. KKÍ færði hins vegar hverjum og einum meistaranna úr ÍKF fallegan grip mörgum árum síðar. Hér er Ingi Gunnarsson fyrirliði fyrstu meistaranna úr ÍKF með grip sinn.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið