© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
         
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
6.3.2001 | 9:44 | BL
Hvað gerir KR gegn Keflavík í kvöld?
KR getur tryggt sér deildarmeistaratitilinn í 1. deild kvenna með sigri á Keflvík í kvöld. KR varð deildarmeistari í fyrra eftir að hafa aðeins tapað tveimur leikjum, en Keflavík varð í örðu sæti með tvö töp, en lakari innbyrðis árangur gegn KR.

Í dag er KR með 4 töp, en Keflavík 3 töp. KR dugar sigur í kvöld til að tryggja sér titilinn þar sem innbyrðis árangur yrði þá betri gegn Keflavík. Fari svo mun það ráðast á Ísafirði um næstu helgi hvort Keflavík eða KFÍ verða í 2. eða 3. sæti deildarinnar.

Ef Keflavík sigrar í leiknum í kvöld, dugar liðinu sigur í öðrum leiknum á Ísafirði um næstu helgi til að tryggja sér titilinn. KR yrði þá í öðru sæti og KFÍ í 3. sæti.

Ef Keflavík vinnur KR í kvöld, en tapar svo báðum leikjunum á Ísafirði um næstu helgi verður KFÍ deildarmeistari. KR yrði þá í 2. sæti og Keflavík í 3.


mt: KR-stelpurnar fögnuðu vel þegar þær urðu bikarmeistarar á dögunum. Hvað gerist í kvöld?
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
UMFN og KR mættust í Bikarúrslitaleiknum í 10. flokki karla 2008 á Bikarúrslitahelginni sem haldin var í Keflavík. UMFN vann 77-53 og var Valur Orri Valsson sem er hér til vinstri valin maður leiksins. Með honum að taka við bikarnum er Oddur Birnir Pétursson en þeir eru fyrirliðar Njarðvíkur. Feður þeirra beggja, Valur og Pétur, léku lengi með Njarðvík á sínum yngri árum.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið