© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
2.12.2006 | 18:16 | oddur
Iceland Express deildin aftur af stað.
Iceland Express deild karla fer aftur af stað á morgun sunnudag 3.desember með 4 leikjum eftir 12 daga frí sem kom til vegna 32 liða úrslita í Lýsingarbikarkeppninni.

Á morgun sunnudag hefst 9. umferð Iceland Express deildar karla með fjórum leikjum. Í Hveragerði taka heimamenn á móti efsta liði deildarinnar KR, í Njarðvík leika Njarðvíkingar við Fjölni, á Sauðárkróki fá heimamenn Keflvíkinga í heimsókn.

Að lokum er það viðureign Þórs frá Þorlákshöfn og Skallagríms en sá leikur er hinn svokallaði Iceland Express leikur þessarar umferðar en það er nýjung í ár. ( Kemur sér kynning um þennan leik síðar í kvöld ) Allir leikir hefjast klukkan 19:15

Hvert lið í Iceland Express deildum karla og kvenna geta valið einn leik þar sem verða ýmsar uppákomur í tengslum við aðalstyrktaraðila deildanna, Iceland Express.

9. umferð lýkur svo á mánudagskvöld með tveim leikjum en þá mætast að nýju á aðeins viku Grindavík og Snæfell í Grindavík og ÍR fær Hauka í Seljaskólann. Báðir leikir hefjast klukkan 19:15

Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Íslenska kvennalandsliðið á Smáþjóðaleikunum er hér á leik Íslands og Kýpur í karlakeppninni. Eitthvað sniðugt virðast þær sjá en íslensku strákarnir töpuðu stórt fyrir þeim kýpversku.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið