© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
24.11.2006 | 10:22 | RG
Rögnvaldur dæmir sinn þúsundasta leik
Rögnvaldur Hreiðarsson dæmir sinn 1000. leik
Rögnvaldur Hreiðarsson körfuknattleiksdómari mun dæma sinn 1000. leik á vegum KKÍ, þ.e. sem dómaranefnd KKÍ hefur raðað á, nú á sunnudaginn í Grindavík. Hann mun ásamt Kristni Óskarssyni og Sigmundi Má Herbertssyni dæma leik Grindavíkur og Snæfells í Lýsingarbikarnum en Kristinn var einmitt annar af kennurum Rögnvaldar þegar hann tók dómaraprófið í nóvember 1994. Það námskeið sat einmitt Sigmundur líka.

Rögnvaldur er einungis annar dómarinn í sögu íslensks körfubolta sem nær að dæma 1000 leiki á vegum KKÍ en 29. nóvember 1992 dæmdi Jón Otti Ólafsson sinn 1000. leik þegar hann dæmdi leik Breiðabliks og Hauka með Héðni Gunnarssyni. Jón Otti lagði flautuna á hilluna vorið 1994 og hafði þá dæmt 1673 leiki á vegum KKÍ.

Rögnvaldur dæmdi sinn fyrsta leik 22. janúar 1995 þegar hann dæmdi leik KR og Grindavíkur í bikarkeppni stúlknaflokks með Brynjólfi Ægi Sævarssyni. Hlutirnir gengu hratt fyrir sig hjá Rögnvaldi og haustið 1996 varð hann A dómari og dæmdi sinn fyrsta leik í Úrvalsdeild í Smáranum í Kópavogi 1. október þar sem áttust við Breiðablik og Haukar. Í þeim leik var meðdómari Rögnvaldar lærimeistari hans frá dómaranámskeiðinu Kristinn Óskarsson sem einmitt dæmir leikinn á sunnudag með honum. Í liði Breiðabliks fékk Erlingur Snær Erlingsson eina villu en hann lagði seinna skóna á hilluna og dró flautuna fram og hefur dæmt fjölmarga leiki með Rögnvaldi síðan.

Í þessum 1000 leikjum hefur Rögnvaldur dæmt með 75 mismunandi dómurum og oftast hefur meðdómarinn verið Björgvin Rúnarsson, en þeir félagar hafa dæmt 119 leiki saman.

Í dag eru Úrvalsdeildarleikir Rögnvaldar orðnir 244 talsins, auk þess sem hann hefur dæmt fjölda leikja í úrslitakeppni karla og kvenna, bikarúrslitaleiki og aðra stórleiki.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Körfuknattleiksfólk úr ÍR, bæði meistaraaflokki karla og kvenna, auk yngri flokka, í hópmyndatöku, líklega 1984.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið