© 2000-2025 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
     
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
9.11.2006 | 10:59 | oddur
Fyrsti leikur Hauka í Evrópukeppninni í kvöld
Lið Hauka að fagna eftir sigur í meistarakeppni KKÍ (mynd af vef Hauka)
Fyrsti evrópuleikur Haukastelpnanna á fimmtudaginn Kvennalið Hauka hefur keppni í Evrópukeppninni, EuroCup, á fimmtudaginn þegar spænska liðið Caja Canarias kemur í heimsókn á Ásvelli. Leikurinn hefst klukkan 19.15. Caja Canarias kemur frá Las Palmas á Kanaríeyjum en liðin mættust einnig í Evrópukeppninni í fyrra og spiluðu einmitt fyrsta evrópuleik íslensks kvennaliðs 20. október 2005.

Haukaliðið tók þátt í Evrópukeppninni síðasta vetur og tapaði þá öllum sex leikjum sínum en það sást greinilega á síðasta leiknum sem tapaðist með 22 stigum á móti ítalska liðinu Ribera á Sikiley hversu mikið Haukaliðið hafði vaxið og þroskast á þátttöku sinni. Nú verður gaman að sjá hvernig hið unga lið Hauka stendst samanburðinn við stórlið frá Evrópu.

Hægt er að lesa meira um leikinn hér.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Jason Dourisseau, leikmaður KR, var án efa maður dagsins á Stjörnudegi KKÍ, laugardaginn 13. desember, sem fram fór á Ásvöllum.

Jason sem lék með úrvalsliði Iceland Express og fór á kostum og var valinn besti maður leiksins, en þar skoraði hann 36 stig og tók 10 fráköst. Hann fór einnig á kostum í troðslukeppninni og sýndi glæsileg tilþrif í háloftunum en það fór svo að hann keppnina. Hér er hann með verðlaun sín eftir daginn.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið