© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
1.3.2001 | 11:06 | BL
Fimm leikir í Epson-deildinni í kvöld
Fimm hörkuleikir eru á dagskrá í 20. umferð Epson-deildinnar í kvöld. Nýkrýndir bikarmeistarar ÍR taka á móti Skallagrím í Seljaskóla, en þessi leikur mun ráða miklu um það hvort liðið nær 8. sætinu í deildinni og þar með sæti í úrslitakeppninni. Leikurinn verður sýndur bein á sjónarpsstöðinni Sýn.

Aðrir leikir í kvöld eru Valur - Hamar í Grafarvogi, en Valsmenn verða að sigra í þessum leik til að eiga möguleik á því að verjast falli í 1. deild.

UMFG tekur á móti Haukum í Grindavík, en bæði þessi lið hafa verið nokkuð brokkgeng upp á síðkastið. Haukar eiga enn möguleika á fjórða sætinu og Grindvíkingar mæta með nýjan erlendan leikmann, William Keys, til leiks.

Keflavík og Þór mætast í Keflavík og heimamenn mega ekki misstíga sig í toppbaráttunni, en liðið að enn möguleika á deildarmeistaratitli. Þórsrar eru enn í örlítilli fallhættu, en geta með sigri í kvöld tryggt sæti sitt í deildinni fyrir næsta keppnistímabil.

Á Sauðárkróki taka Tindastólsmenn á móti KFÍ, sem þegar eru fallnir. Tindastóll á eins og möguleika á deildarmeistaratitli og þarf því nauðsynlega að sigra í leiknum í kvöld.

Síðasti leikur 20. umferðar Epson-deildarinnar verður annað kvöld þegar topplið UMFN tekur á móti Íslandsmeisturum KR í Njarðvík.

Allir leikir kvöldsins, sem og leikurinn annað kvöld hefjast kl. 20:00.


mt: Sigurður Þorvaldsson og félagar í ÍR eiga mikilvægan leik fyrir höndum í kvöld gegn Skallagrím.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Leikmenn í kvennaliði 20. aldarinnar hjá KKÍ.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið