© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
22.10.2006 | 13:09 | OOJ
Nýliðarnir stálu senunni í þríhöfða stelpnanna í Grindavík
Nýliðar Hamars/Selfoss í Iceland Express deild kvenna stóðu sig vel í sínum fyrsta leik í 1. umferð deildarinnar en hún fór öll fram í Grindavík á laugardaginn. Í tilefni af Ári kvennakörfunnar í Evrópu var opnunarumferð deildarinnar spiluð öll á sama stað og tókst umgjörð og framkvæmd leikjanna mjög vel. Gestgjafar Grindavíkur tóku vel á móti hinum liðunum fimm sem skipa deildina og þó svo að spennan hafi mátt vera meiri í síðari leikjunum tveimur þá var opnunarleikurinn hin besta skemmtun.

Grindavík vann Hamar/Selfoss 86-74 í fyrsta leik dagsins og þar með deildarinnar en þetta var fyrsti leikurinn hjá hinu unga liði Hamars/Selfoss í efstu deild kvenna. Grindavík hafði forustuna stærstan hluta leiksins en í hálfleik munaði aðeins þremur stigum en Grindavík var þá 36-33 yfir. Tamara Bowie skoraði 25 af 35 stigum sínum í seinni hálfleik og reyndist gestunum illviðráðanleg en hún tók auk þess 20 fráköst í leiknum. Hjá Hamar/Selfoss áttu þær Atari Parker (25 stig, 21 fráköst, 8 varin, 8 stoðsendingar), Dúfa Dröfn Ásbjörnsdóttir (24 stig, hitti úr 6 af 10 þriggja stiga skotum) og Sóley Guðgeirsdóttir (13 stig) allar mjög góðan leik.

Íslandsmeistarar Hauka áttu ekki í miklum vandræðum með Stúdínum en liðin mættust þarna þriðju helgina í röð eftir að hafa spila undanúrslitaleik í Powerade-bikarnum fyrir tveimur vikum og síðan í Meistarakeppninni um síðustu helgi. Haukar unnu nú með 51 stigi sem var stærsti sigurinn í öllum leikjunum þremur. Ifeoma Okonkwo var með 23 stig og 11 fráköst, Helena Sverrisdóttir bætti við 21 stigi og 11 stoðsendingum og maður leiksins, Kristrún Sigurjónsdóttir var með 21 stig, 6 fráköst og nýtti 8 a 14 skotum sínum. Hjá ÍS var Helga Jónasdóttir með 19 stig og 13 fráköst.

Lokaleikurinn milli Keflavíkur og Breiðabliks var aldrei spennandi, Keflavík skoraði 8 fyrstu stigin, komst í 21-4 og vann að lokum með 75 stiga mun, 121-46. TaKesha Watson sýndi góð tilþrif í sínum fyrsta leik með Keflavík og skoraði 28 stig og gaf 7 stoðsendingar á 21 mínútu. María Ben Erlingsdóttir var með 25 stig, 9 fráköst og 80% skotnýtingu (12 af 15) og Birna Valgarðsdóttir skoraði 18 stig. Svava Ósk Stefánsdóttir lék aðeins í 22 mínútur en gældi við fjórfalda tvennu, var með 8 stig, 11 fráköst, 8 stolna bolta og 7 stoðsendingar. Hjá Breiðabliki var Tiara Harris með 23 stig og Telma Ósk Fjalarsdóttir skoraði 13 stig og tók 10 fráköst. Aðrir leikmenn liðsins skoruðu aðeins 10 stig og klikkuðu á 22 af 24 skotum sínum.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Magni Hafsteinsson, leikmaður Snæfells, sendir Erlingi Snæ Erlingssyni, dómara, tóninn eftir tapleik Snæfells gegn Njarðvík í Lýsingarbikarnum í janúar 2006.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið