© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
20.10.2006 | 18:06 | OOJ
Karfan.is spáir í spilin í Iceland Express deild kvenna
Haukakonur hafa unnið tvo fyrstu titlana í ár. Mynd Karfan.is
Körfuboltavefurinn Karfan.is hefur fjallað vel um körfuboltann að undanförnu og þar á meðal hafa liðsmenn síðunnar spáð fyrir um gengi liðanna í Iceland Express deild kvenna. Karfan.is hefur síðustu daga birt umfjöllum um hvert lið í þeirri röð sem síðan spáir þeim. Deildin hefst á morgun með þríhöfða í Grindavík en opnunarleikurinn er jafnframt fyrstu leikur Hamars/Selfoss í efstu deild kvenna frá upphafi.

Liðsmenn Karfan.is spá því að Haukakonur vinni deildarmeistaratitilinn annað árið í röð og eru sammála spá þjálfara, fyrirliða og forráðamanna að öllu leiti nema því að þeir álíta að Grindavík og Keflavík verði jöfn í 2. til 3. sætinu. Nýliðar Hamars/Selfoss falla í 2. deild samkvæmt spá þeirra alveg eins og í þeirri sem var birt á kynningarfundi deildarinnar.

Þetta framtak þeirra á Karfan.is er til mikillar fyrirmyndar en með hverju félagi fylgir skemmtileg umfjöllum um liðið, hverjir skipa leikmannahópinn og þar er einnig yfirlit yfir helstu breytingarnar frá því á síðasta tímabili. Hér fyrir neðan má finna tengla á allar greinarnir á Karfan.is um liðin sex sem skipa efstu deild kvenna í vetur.

Spáin hjá Karfan.is í Iceland Express deild kvenna 2006-07:
1. sæti Haukar
2. til 3. sæti Keflavík
2. til 3. sæti Grindavík
4. sæti ÍS
5. sæti Breiðablik
6. sæti Hamar/Selfoss

Iceland Express deild kvenna hefst á á morgun og sú nýbreytni er nú á fyrstu umferðinni að hún er öll spiluð á sama degi á sama stað. Þetta er gert í tilefni af Ári kvennakörfunnar í Evrópu en því er fagnað með allskyns viðburðum út um alla Evrópu í allan vetur.

Leikirnir þrír eru spilaðir hver á fætur öðrum. Gestgjafar Grindavíkur vígja fyrst Hamarsstúlkur inn í efstu deild í opnunarleiknum sem hefst klukkan 13.00. Klukkan 15.00 spila síðan Haukar og ÍS sem hafa mætast þar þriðju helgina í röð en liðin mættust einnig í undanúrslitum Powerade-bikarsins og í meistarakeppninni. Lokaleikur dagsins er síðan á milli Keflavíkur og Breiðabliks en hann hefst klukkan 17.00.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Ægir Þór Steinarsson var valinn mikilvægasti leikmaðurinn á Norðurlandamóti U16 ára drengja 2007.  Hér sést hann með verðlaunagripi sína.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið