© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
19.10.2006 | 15:08 | OOJ
Karfan.is spáir í spilin í Iceland Express deild karla sem hefst í kvöld
Körfuboltavefurinn Karfan.is hefur fjallað vel um körfuboltann að undanförnu og þar á meðal hafa liðsmenn síðunnar spáð fyrir um gengi liðanna í Iceland Express deild karla. Karfan.is hefur síðustu daga birt umfjöllum um hvert lið í þeirri röð sem síðan spáir þeim. Iceland Express deild karla hefst í kvöld með fjórum leikjum og hinir tveir leikir fyrstu umferðarinnar spilast síðan á morgun.

Liðsmenn Karfan.is spá því að Íslandsmeistarar Njarðvíkur verji titilinn og að nýliðar Tindastóls og Þórs úr Þorlákshöfn falli í 1. deild og eru þar sammála spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna sem var birt á kynningarfundinum fyrir Iceland Express deildirnar. Þetta framtak þeirra á Karfan.is er til mikillar fyrirmyndar en með hverju félagi fylgir skemmtileg umfjöllum um liðið, hverjir skipa leikmannahópinn og þar er einnig yfirlit yfir helstu breytingarnar frá því á síðasta tímabili. Hér fyrir neðan má finna tengla á allar greinarnir á Karfan.is um liðin tólf sem skipa þessa 29. úrvalsdeild karla.

Keflavík hefur unnið deildarmeistaratitilinn tvö síðustu ár en sömu átta lið hafa verið í úrslitakeppninni síðustu tvö tímabil. Nú verður fróðlegt að sjá hvort lið Hauka, Hamars/Selfoss, Tindastóls eða Þórs úr Þorlákshöfn geti breytt því í vetur. Tvö þau síðastnefndu eru komin í hóp þeirra bestu á nýjan leik, Stólarnir eftir eins árs fjarveru en Þórsarar léku í fyrsta og eina skiptið í deildinni veturinn 2003-04.

Spáin hjá Karfan.is í Iceland Express deild karla 2006-07:
1. sæti Njarðvík
2. sæti Keflavík
3. sæti KR
4. sæti Skallagrímur
5. sæti Grindavík
6. sæti Snæfell
7. sæti ÍR
8. sæti Haukar
9. sæti Hamar/Selfoss
10. sæti Fjölnir
11. sæti Tindastóll
12. sæti Þór Þ.

Iceland Express deild karla hefst í kvöld með fjórum leikjum sem allir hefjast klukkan 19.15. Mótið verður sett í Keflavík þegar heimamenn taka á móti Skallagrím en á sama tíma mætast ÍR og Íslandsmeistarar Njarðvíkur í Seljaskóla, Fjölnir og bikarmeistarar Grindavíkur í Íþróttamiðstöðinni í Grafarvogi og loks Haukar og Tindastóll á Ásvöllum. Á morgun verða svo tveir hörkuleikir. KR tekur á móti Snæfelli í DHL-höllinni og í Þorlákshöfn mætast nágrannarnir og erkifjendurnir Þór Þorlákshöfn og Hamar/Selfoss.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Heiðrún Kristmundsdóttir, leikmaður U18 kvenna, í myndatöku fyrir NM 09.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið