© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
         
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
11.10.2006 | 19:36 | OOJ
Logi skoraði 36 stig í fyrsta leiknum í byrjunarliði ToPo
Logi hefur skorað 51 stig í fyrstu 2 leikjunum í Finnlandi.
Logi Gunnarsson var sjóðheitur í fyrsta leik sínum í byrjunarliði ToPo Helsinki í finnsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. Logi skoraði 36 stig í 94-82 sigri liðsins á Tampereen Pyrinto á útivelli. Logi var með 13 stig í fyrsta leiknum sínum um síðustu helgi en hann kom þá inn af bekknum í 88-71 sigri á UU-Korihait. Enginn leikmaður í finnsku deildinni hefur skorað meira í einum leik á tímabilinu en Logi í kvöld en fjórar umferðir eru búnar í deildinni.

Logi skoraði stigin 36 á 32 mínútum í kvöld og setti meðal annars niður átta þrista úr aðeins 13 skotum fyrir utan. Skotnýting Loga var líka frábær því 12 af 20 skotum hans og 4 af 5 vítum fóru rétta leið. Logi var auk þess með 5 fráköst og 3 stoðsendingar. ToPo Helsinki er eftir leikinn í 1. til 4. sæti deildarinnar með 3 sigra í 4 leikjum.

ToPo Helsinki var tíu stigum undir í hálfleik, 53-43, en Logi fór fyrst á flug í seinni hálfleiknum þegar hann skoraði 22 af 36 stigum sínum og nýtti þá 7 af 10 skotum. Logi klikkaði reyndar á tveimur fyrstu skotum sínum í seinni hálfleik en fann svo heldur betur körfuna og ToPo Helsinki vann síðustu 19 mínútur leiksins með 25 stiga mun, 51-26. Logi skoraði eins og áður sagði 22 af þessu 51 stigi.

Með þessum leik í kvöld er Logi orðinn stigahæsti leikmaður finnsku deildarinnar með 25,5 stig að meðaltali í fyrstu tveimur leikjunum sínum en hann er einnig sá sem hefur sett niður flesta þrista að meðaltali eða 5,5 í leik. Logi hefur nýtt 11 af 20 fyrstu þriggja stiga skotum sínum í finnsku deildinni.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Bekkjarlið 5. b í Fellaskóla sigraði í fyrsta Landsbankamóti ÍR í minnibolta 1983, en mótið var milli 5. bekkja í Breiðholti. Frá vinstri, Kjartan G. Björnsson, Grétar V. Grétarsson, Hermann Hauksson, Börkur Jakobsson, Gunnar Þór Arnarson og Rúnar Þ. Guðmundsson. Fyrir aftan stendur þjálfari drengjanna og íþróttakennari, Sigvaldi Ingimundarson. Sem kunnugt er varð einn þessara drengja, Hermann Hauksson; landsliðsmaður í körfubolta.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið