© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
2.10.2006 | 14:22 | oddur
Átta liða úrslitum lokið
Brenton Birmingham var stigahæstur gegn Hamri/Selfoss
Átta liða úrslit Powerade bikarkeppninnar lauk í gær með þremur leikjum. Heimaliðið sigraði í öllum fjórum leikjunum í átta liða úrslitum og eru því fjögur efstu liðin síðan í fyrra komin áfram.
Skallagrímur mun leika gegn Keflavík klukkan 19:00 og Njarðvík mun mæta KR klukkan 21:00. Leikirnir munu fara fram í Laugardalshöll næstkomandi fimmtudag.

Á laugardaginn lögðu Njarðvíkingar Hamar/Selfoss að velli 99 - 79. Þrír leikmenn Njarðvíkur skoruðu yfir 20 stig í leiknum. Brenton Birmingham skoraði 26 stig, Friðrik Stefánsson 24 og Jeb Ivey 23. Hjá Hamri var Lewis Monroe stigahæstur með 30 stig.

Hinir leikirnir í átta liða úrslitum voru svo leiknir í gær.
Í vesturbænum fóru KR-ingar nokkuð létt með Grindvíkinga. Þeir léku á alls oddi í leiknum og skoruðu 7 leikmenn þeirra 10 stig eða meira. Lokatölur urðu 108 - 87 fyrir KR. Hjá Grindavík voru Páll Axel Vilbergsson og Steven Thomas langatkvæðamestir.
Það má lesa meira um leikinn hér.

Keflvíkingar unnu stórsigur á Tindastóli 100 - 62. Tveir nýjir leikmenn Keflavíkur, þeir Thomas Soltau og Sigurður Þorsteinsson, voru stigahæstir í leiknum en allir leikmenn Keflavíkur komust á blað í þessum leik. Lamar Karim var ekki jafn heitur og í fyrstu umferðinni en var þó stigahæstur með 22 stig.

Í Borgarnesi sigraði Skallagrímur Hauka með 101 stigi gegn 89. Dimitar Karadzovski og Jovan Zdravevski voru stigahæstur hjá Skallagrím en Kevin Smith og Roni Leimu skoruðu mest fyrir Hauka.
Þetta er í fyrsta sinn sem að Skallagrímur vinnur sér sæti á meðal hinna "fjögurra fræknu" en alls hafa 10 lið komist í fjögurra liða úrslit frá upphafi keppninnar.

Það verður gífurlega gaman að sjá leikina í fjögurra liða úrslitum á fimmtudaginn enda munu mætast þar liðin sem að voru í toppsætum deildarinnar síðastliðið vor. Þarna verða því leiknir stórleikir.

Það er ástæða til þess að hvetja alla áhugamenn um körfuknattleik til þess að mæta í Höllina og fylgjast með liðunum á fimmtudaginn.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá ársþingi KKÍ á Flúðum árið 1994.  Kolbrún Jónsdóttir, Elínborg Guðnadóttir og Erla Sveinsdóttir.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið