© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
30.9.2006 | 9:37 | oddur
Átta liða úrslit Powerade hefjast í dag.
Roni Leimu skoraði 22 stig fyrir Hauka gegn ÍR
Fyrstu umferð í Powerade bikarkeppni karla lauk í gær með leik ÍR og Hauka í Seljaskóla. Þar báru Haukar sigur af hólmi og unnu sér þar með rétt til að leika í átta liða úrslitum gegn Skallagrími.
Grindavík, Hamar/Selfoss og Tindastóll sigruðu í sínum leikjum á fimmtudagskvöldið og tryggðu sér því einnig sæti í átta liða úrslitum.

Í kvöld klukkan 19:15 mun Njarðvík taka á móti Hamri/Selfoss í Njarðvík. Hamar/Selfoss komst áfram með því að sigra Fjölni 84-74 á fimmtudaginn.

Á sunnudag lýkur svo átta liða úrslitunum með þremur leikjum. Klukkan 16:00 mætast KR og Grindavík á heimavelli KR. Grindavík sigraði Þór Þorlákshöfn 80-74 í Grindavík á fimmtudagskvöldið.
KR hafði þegar tryggt sér sæti í Átta liða úrslitum ásamt Njarðvík, Keflavík og Skallagrím. Fjögur efstu liðin frá því í fyrra komust sjálfkrafa í átta liða úrslit og eiga heimavallarréttindi þar.

Klukkan 19:15 mætast svo Keflavík og Tindastóll annars vegar og svo Skallagrímur og Haukar. Skallagrímur og Keflavík munu leika á heimavelli í þessum viðureignum.
Tindastóll kom mörgum á óvart með því að sigra Snæfell á
Stykkishólmi á fimmtudagskvöldið. Í þeim leik fór Lamar Karim, Bandaríkjamaðurinn í röðum Tindastóls, á kostum og skoraði 45 stig.

Það verður spennandi að fylgjast með næstu leikjum í Powerade bikarnum um helgina. Hver leikur er úrslitaleikur um hvaða lið kemst áfram og ætti baráttan því að vera í hámarki.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Ívar Ásgrímsson og Ólafur Rafnsson úr Haukum í baráttu um frákast við Axel Nikulásson úr Keflavík.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið