© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
21.9.2006 | 15:56 | oddur | FIBA, Landslið
Undanúrslitin á Heimsmeistamóti kvenna í dag.
Undanúrslitin á HM eru í dag
Heimsmeistarakeppnin í kvennakörfuknattleik fer fram í Brasilíu um þessar mundir. Bandaríkin og Ástralía voru einu liðin í keppninni sem unnu alla sína leiki í riðlakeppninni. Í dag fara undanúrslitin í keppninni fram þegar Ástralía leikur gegn heimakonum í Brasilíu og aðalleikararnir úr kaldastríðinu mætast í hinum undanúrslitaleiknum, Bandaríkin-Rússland.

Rússar lögðu Spánverja í gær 60-56 í átta liða úrslitum, Brasilía vann Tékka 75-51, Ástralía lagði Frakkland 79-66 og Bandaríkin burstuðu Litháen 90-56.

Úrslitaleikurinn fer svo fram á laugardag en leikurinn um þriðja sætið fer fram rétt á undan úrslitaleiknum þann sama dag.

Stigahæst í mótinu er Ástralinn Lauren Jackson með 22,5 stig að meðaltali í leik, henni næst var Spánverjinn Amaya Valdemoro með 20,4 stig. Flest fráköst að meðaltali í leik hefur Gisella Vega frá Argentínu rifið niður eða 9,4 að meðaltali í leik. Itoro Umoh frá Nígeríu hefur gefið flestar stoðsendingar að meðaltali í leik eða 5,8.

(Frétt fengin af karfan.is)
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Ægir Þór Steinarsson var valinn mikilvægasti leikmaðurinn á Norðurlandamóti U16 ára drengja 2007.  Hér sést hann með verðlaunagripi sína.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið