© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
18.9.2006 | 15:33 | OOJ | Landslið
Signý efst í bæði stolnum boltum og vörðum skotum
Signý hefur stoppað 33 sóknir mótherjanna.
Signý Hermannsdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins, er í efsta sæti í b-deild Evrópukeppninnar í bæði vörðum skotum og stolnum boltum þegar tveir leikir eru búnir af þeim þremur sem landsliðin spila í haust. Íslensku stelpurnar eru í hópi efstu leikmanna í mörgum tölfræðiþáttum en Helena Sverrisdóttir er meðal annars ein af þremur sem hafa gefið flestar stoðsendingar.

Signý Hermannsdóttir hefur spilað vel í íslensku vörninni í fyrstu tveimur leikjunum. Hún hefur varið 8 skot, stolið 9 boltum og tekið 16 varnarfráköst og er meðal annars búin að verja þrjú fleiri skot en næsti leikmaður á listanum. Signý hefur þannig stoppað 33 sóknir mótherja íslenska landsliðsins eða 16,5 að meðaltali í leik. Signý er síðan í 3. til 4. sæti ásamt Helenu Sverrisdóttur í flestum fráköstum að meðaltali í leik en báðar hafa þær tekið 21 fráköst eða 10,5 í leik. Helena er efst í stoðsendingum ásamt Gilda Correia frá Portúgal og Anette Johansen frá Noregi en allar hafa þær gefið 8 stoðsendingar eða 4 að meðaltali í leik.

Helena Sverrisdóttir er meðal efstu manna í stigum (4. sæti - 16,5 í leik) og þá er Birna Valgarðsdóttir í 3. sæti í þriggja stiga skotnýtingu en hún hefur nýtt 5 af 11 langskotum sínum eða 45,5% skota sinna fyrir utan þriggja stiga línuna. Þá má reyndar ekki líta framhjá því að Helena Sverrisdóttir hefur tapað langflestum boltum af öllum leikmönnum (9,5 að meðaltali í leik) og Birna Valgarðsdóttir hefur fengið flestar villur eða 9 af 10 mögulegum. Signý (74 mínútur - 37,0 í leik) og Helena (70 mínútur - 35,0) eru síðan þeir tveir leikmenn sem hafa spilað flestar mínútur í fyrstu tveimur umferðunum.

Það má skoða þessa lista sem og aðra margskonar lista yfir tölfræðiárangur allra leikmanna í fyrstu tveimur umferðum b-deildarinnar hér.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Jason Dourisseau, leikmaður KR, var án efa maður dagsins á Stjörnudegi KKÍ, laugardaginn 13. desember, sem fram fór á Ásvöllum.

Jason sem lék með úrvalsliði Iceland Express og fór á kostum og var valinn besti maður leiksins, en þar skoraði hann 36 stig og tók 10 fráköst. Hann fór einnig á kostum í troðslukeppninni og sýndi glæsileg tilþrif í háloftunum en það fór svo að hann keppnina. Hér er hann með verðlaun sín eftir daginn.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið