© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
15.9.2006 | 19:31 | oddur
Strákarnir komnir til Austurríkis
Brenton Birmingham er með flest stig að meðaltali í B- keppninni.
Íslenska karlalandsliðið er komið til Austurríkis. Liðið var á æfingu í kvöld og eru allir klárir í leikinn gegn Austurríki sem hefst kl. 18:20 að íslenskum tíma á morgun. Leikurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir Íslendinga til þess að halda opnum möguleikanum á því að komast upp í A-deild Evrópukeppninnar.

Austurríki sigraði Lúxemburg 64-62 þegar liðin léku í Lúxemburg 9. september síðastliðinn. Austurríkismenn voru 17 stigum undir í lok fjórða leikhluta en náðu að vinna upp forskotið og sigra í leiknum.
Það er því ljóst að Austurríki er sýnd veiði en ekki gefin og strákarnir verða að leika vel til þess að sigra þá á útivelli.

Það verður mikið álag á lykilmönnum liðsins, en þeir verða að fylla í skarðið sem Jón Arnór Stefánsson skilur eftir sig. Það verður ekki auðvelt en engu að síður eru margir sem að hafa leikið vel og geta dregið vagninn. Brenton Birmingham er með flest stig að meðaltali ásamt Zaza Pachulia frá Georgíu með 22 stig að meðaltali í leik. Hlynur Bæringsson er í öðru sæti í fráköstum með 10,7 að meðaltali í leik.


Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Ármenningar urðu Íslandsmeistarar í 1. flokki 1963 og 1964. Aftari röð frá vinstri: Offert Nåbye, Davíð Jónsson, Hilmar Ingólfsson, Sigurjón Yngvason (ofar), Finnur Finnsson og Hafsteinn Hjaltason. Fremri röð frá vinstri: Árni Samúelsson, Jón Þór Hannesson, Elías Þ. Magnússon og Lárus Lárusson.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið