© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
13.9.2006 | 9:00 | oddur | Landslið
Ísland - Lúxemburg í Keflavík í kvöld
Páll Axel átti góðan leik síðasta miðvikudag
Íslenska landsliðið í körfuknattleik mætir Lúxemburg kl. 20:00 í Keflavík í kvöld. Þetta verður þriðji leikur liðsins í B-deild Evrópukeppninnar í körfuknattleik. Íslenska liðið verður að sigra til þess að eiga möguleika á því að komast upp í A-deildina. Íslendingar sigruðu þegar liðin mættust síðast á Smáþjóðaleikunum.
Lúxemburgarar eru þó sýnd veiði en ekki gefin en lið þeirra er skipað eftirfarandi leikmönnum.

4 Tom Schumacher 194cm Bakvörður
5 Jean Marc Melchior 197cm Bakvörður/framvörður
6 Gilles Bach 183cm Leikstjórnandi
7 Frank Muller 190cm Bakvörður
8 Eric Jeitz 184cm Bakvörður
9 Jairo Ferreira 190cm Leikstjórnandi
10 Bob Kieffer 195 Framvörður
11 Samy Picard 180cm Bakvörður
12 Felix Hoffman 190cm Framvörður
13 Gil Melchior 194cm Bakvörður
14 Martin Rajniak 205cm Framvörður
15 Alvin Jones 211cm Miðvörður

Þeirra bestu leikmenn að mati landsliðsþjálfaranna eru:

Alvin Jones. Alvin er bandarískur að uppruna en fæddist í Luxemburg þegar faðir hans var að leika körfubolta þar 1978. Alvin Jones var valinn í fyrstu umferð NBA deildarinnar árið 2001 en hefur leikið að mestu í toppdeildum Evrópu eins og á Spáni og Póllandi . Þetta er mikill skrokkur.

Martin Rajniak: Martin er hávaxinn framvörður sem er mjög fjölhæfur leikmaður. Hann getur bæði skorað inn í teig sem og skotið vel að utan. Martin lék í háskólaboltanum í Bandaríkjunum þar sem hann stóð sig vel, hefur á síðustu árum verið að leika heima fyrir sem og aðeins á Spáni.

Íslenska liðið er skipað sömu leikmönnum og áður en þeir eru:

4 Magnús Gunnarsson 25 ára Keflavík
5 Friðrik Stefánsson 30 ára Njarðvík
6 Jakob Sigurðarson 24 ára Vigo, Spáni
7 Jón Hafsteinsson 25 ára Keflavík
8 Egill Jónasson 22 ára Njarðvík
9 Jón Arnór Stefánsson 23 ára Pamesa Valencia, Spáni
10 Páll Axel Vilbergsson 28 ára Grindavík
11 Brenton Birmingham 34 ára Njarðvík
12 Fannar Ólafsson 28 ára KR
13 Hlynur Bæringsson 24 ára Snæfelli
14 Logi Gunnarsson 25 ára Bayeruth, Þýskalandi
15 Helgi Magnússon 24 ára Boncourt, Sviss

Eins og áður er mikilvægt að áhorfendur mæti og styðji strákana okkar til sigurs í þessum mikilvæga leik.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Daði Grétarsson, leikmaður FSu, skorar hér framhjá Haukamönnunum Helga Einarssyni og Sigurði Þór Einarssyni í úrslitakeppni 1. deildar karla vorið 2008. FSu lagði Hauka 2-0 og fór svo upp í Iceland Express-deildina með því að leggja Val að velli í úrslitunum.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið